Skip to main content

Því miður er ekki tekið við fleiri beiðnum um einstaklingsviðtöl á þessu misseri

Til að koma til móts við nemendur hefur verið boðið upp á nokkur ólík námskeið byggð á hugrænni atferlismeðferð (HAM) á þessu misseri og verður áfram í boði á næsta misseri. Námskeiðin eru auglýst í tilkynningum á Uglunni, á samfélagsmiðlum NSHÍ með 1 - 2 vikna fyrirvara. Einnig fá nemendur sendar auglýsingar í tölvupósti. 

Við viljum benda þér á fleiri leiðir sem gætu gagnast: 

  1. Hafa samband við náms-og starfsráðgjafa hér í HÍ sem sinna persónulegri og náms- og starfstengdri ráðgjöf. 
  2. Hafa samband við heimilislækni og kanna möguleika á sálfræðimeðferð í heilsugæslunni þinni. 
  3. Hafa samband við sálfræðiráðgjöf Háskólanema þar sem meistaranemar í klínískri sálfræði veita meðferð. Tíminn þar kostar 1.500 kr. Þar er boðið upp á vikuleg viðtöl, en einhver bið getur verið eftir fyrsta tíma. Til að komast að þar getur þú hringt í síma 856 2526 og lesið nafn og símanúmer inn á talhólf.
  4. Ef vanlíðanin er það mikil að þú verður að fá aðstoð strax bendum við á bráðamóttöku geðsviðs. Opnunartímar þar eru frá 12-19 virka daga og 13-17 um helgar en utan þess tíma er geðlæknir á bakvakt á bráðamóttökunni í Fossvogi. 
  5. Hér er linkur á sjálfshjálparsíðu þar sem fjölbreytt efni er sett upp á aðgengilegan hátt. Þú getur skoðað hvort þú getur nýtt þér þetta: https://www.cci.health.wa.gov.au/Resources/Looking-After-Yourself 
  6. Önnur úrræði: 
    • Hjálparsími Rauða krossins (1717) eða netspjall á raudikrossinn.is 
    • Pieta samtökin (pieta.is
    • Bergið stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk (bergid.is

Það verður opnað að nýju fyrir umsóknir um einstaklingsviðtöl í byrjun næstu annar.