Starfsfólk deildarinnar hafa hlotið margvíslegar viðurkenningar. Þrándur Helgason doktorsnemi, 1. verðlaun 1. verðlaun Þrándur Helgason doktorsnemi við Matvæla- og Næringarfræðideild Háskóla Íslands hlaut 1. verðlaun fyrir framlag sitt á ársþingi Bandarísku matvælafræðisamtakanna sem haldið var í New Orleans síðastliðið sumar. Ráðstefnuna sækja um 40 þús. aðilar allstaðar að úr heiminum bæði úr háskólasamfélaginu og frá matvælaiðnaði. Þrándur hlaut fyrstu verðlaun í atvælaefnafræði fyrir erindi sitt "Effect of lipid composition physical stability of solid lipid anoparticles" en meðhöfundar eru þeir Tarek S. Awad nýdoktor, og Eric Decker, David J. McClements og ochen Weiss allir prófessorar við University of Massachusetts í Amherst, MA í BNA og Kristberg ristbergsson prófessor við Matvæla og næringarfræðideild Háskóla íslands en hann er ðalleiðbeinandi Þrándar en verkefnið er samvinnuverkefni þessara tveggja háskóla. Samkeppnin um þessi verðlaun er mjög hörð og þykir þetta því miklill heiður fyrir Þránd. Sjá auglýsingu. Viðurkenning Þrándur hefur einnig verið tilnefndur af AOCS "American Oil Chemist´s Society" til að taka við "AOCS Honored Student Award" fyrir árið 2009 á ráðstefnu samtakanna sem haldin verður í Orlando í Flórída í maí 2009. Þetta þykir einnig mjög mikill heiður þar sem að samkeppni um þessi verðlaun er milli nema í framhaldsnámi sem koma frá matvælafræðideildum og efna- og lífefnafræðideildum alstaðar að úr heiminum en þó einkum frá nánast öllum háskólum í Bandaríkjunum þar sem stundaðar eru rannsóknir á efnafræði fitu. Ingibjörg Gunnarsdóttir prófessor, Hvatningastyrkur Vísindasjóðs LSH Ingibjörg Gunnarsdóttir prófessor og forstöðumaður RÍN hlaut einn þriggja hvatningastyrkja úr Vísindasjóði Landspítala fyrir verkefnið; Þróun einstaklingsmiðaðrar næringarmeðferðar á meðgöngu. "Development of a personalised nutrition therapy in pregnancy". Hér má sjá nánari umfjöllun um styrkinn og styrkveitinguna á heimasíðu Landspítala. Matvæla- og næringarfræðideild, Fjöregg MNÍ Matvæla- og næringarfræðideild HÍ og Matís hljóta Fjöreggið fyrir árangursríkt samstarf um rannsóknir og kennslu í matvælafræði, ekki síst fyrir samstarf um alþjóðlegt meistaranám í matvælafræði sem hleypt var af stokkunum í núverandi mynd árið 2012. Þau María Guðjónsdóttir, dósent í matvælafræði við Matvæla- og næringarfræðideild, og Hörður G. Kristinsson, rannsókna- og nýsköpunarstjóri Matís, tóku við viðurkenningunni úr hendi Almars Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Ágústa Guðmundsdóttir prófessor, Heiðursverðlaun MNÍ Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands veitti í fyrsta skipti heiðursviðurkenningu á Matvæladaginn 20. október 2016. Ágústa Guðmundsdóttir, prófessor emeritus, fékk heiðursviðurkenningu MNÍ fyrir lofsvert framtak í þágu matvæla- og næringarrannsókna á Íslandi. Ágústa hefur verið brautryðjandi á mörgum sviðum. Rúmlega þrítug varð hún ein af fyrstu matvælafræðingum til að útskrifast frá Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi í erfðatækni og próteinefnafræði frá Háskólanum í Virginia árið 1988. Árið 1993 var hún skipuð fyrsti prófessorinn í matvælafræði við Háskóla Íslands. Með skipuninni varð Ágústa fyrst kvenna til að verða skipuð prófessor við raunvísindadeild HÍ. Frétt af vef MoN Óla Kallý Magnúsdóttir, ungur vísindamaður á Landspítala Óla Kallý Magnúsdóttir næringarfræðingur og starfsmaður Næringastofu Landspítala var heiðruð sem Ungur vísindamaður á Landspítala á Vísindi á Vordögum, þriðjudaginn 26.apríl 2016. Við óskum henni hjartanlega til hamingju. Óla Kallý flutti erindi um rannsóknir sínar en einnig var úthlutað úr Vísindasjóði LSH þar sem starfsfólk RÍN/Næringarstofu hlaut fimm styrki. Frétt á vef Landspítala facebooklinkedintwitter