Ungmenni setjast á skólabekk í Háskóla unga fólksins

Háskóli unga fólksins fer inn í sitt 21. starfsár með glæsilegt úrval námskeiða fyrir börn og unglinga á aldrinum 12–14 ára. Vikuna 10.-13. júní fá um 250 nemendur tækifæri til að sækja fjölbreytt námskeið, smiðjur og þemadaga hjá vísindafólki og sérfræðingum Háskóla Íslands. Í skólanum má með sanni segja að þekking, forvitni og gleði fari saman hönd í hönd.
Fjöldi nýrra námskeiða verður í boði í Háskóla unga fólks ár, þar á meðal afar spennandi námskeið, Eldfjöllin okkar, með jarðeðlisfræðingnum Magnúsi Tuma Guðmundssyni, sem leiðir krakkana í allan sannleikann dýnamík eldfjalla og krafta jarðarinnar. Meðal annarra nýrra námskeiða má nefna Eðlisfræði vatnseldflauga, Fjármálalæsi, Geituð málvísindi, DNA, Kóralla Íslands, Álfa og huldufólk, Sagnasmiðju, Dreka og kynjaverur og Undur erfðafræðinnar í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu.
Viðfangsefnin nemenda í Háskóla unga fólksins eru afar fjölbreytt, allt frá gervigreind og stjörnufræði með Sævari Helga til skurðlækninga, félagsráðgjafar og nútímastjórnmála. Ekki má gleyma hinum sívinsælu námskeiðum í efnafræði með Sprengju-Kötu, Lögfræði, Sjúkraþjálfun, Tölvutækni og forritun, Lyfjafræði, Tómstunda- og félagsmálafræði og Blaða- og fréttamennsku.
Í skólanum kynnast nemendur einnig fornleifafræði, heimsmarkmiðunum, næringarfræði, frumkvöðlafræði, afbrotafræði, íþrótta- og heilsufræði, lífsleikni og Mið-Austurlandafræði.
Allt skólastarfið er skipulagt með gleðina að leiðarljósi og á milli kennslustunda er boðið upp á útileiki og spil. Botninn verður svo sleginn í Háskóla unga fólksins föstudaginn 13. júní með grillveislu og lokahátíð þar sem uppblásnir vellir og þrautabrautir skapa frábæra stemningu fyrir framtíðarsérfræðinga þjóðarinnar.
Hægt verður að fylgjast með skólastarfi í Háskóla unga fólksins á vef skólans og Facebook-síðu hans.
Vikuna 10.-13. júní fá um 250 nemendur á aldrinum 12-14 ára tækifæri til að sækja fjölbreytt námskeið, smiðjur og þemadaga hjá vísindafólki og sérfræðingum Háskóla Íslands í Háskóla unga fólksins. MYND/Kristinn Ingvarsson