Tuttugu og sex nemendur útskrifast frá Jafnréttisskóla GRÓ

Jafnréttisskólinn (GRÓ GEST) brautskráði 26 nemendur á óvenju sólríkum íslenskum vordegi síðastliðinn þriðjudag, 20. maí. Um er að ræða stærsta árganginn til þessa. Í ár líkt og fyrri ár koma nemendur víða að, frá Afríku, Suður-Asíu, Austur-Evrópu, Mið-Austurlöndum og Balkanskaganum. Hópurinn samanstendur af sérfræðingum á sviði jafnréttismála með fjölbreyttan bakgrunn sem starfa ýmist innan stjórnsýslu, háskóla, grasrótarsamtaka, fjölmiðla eða lista. Í fyrsta skiptið sóttu nemendur frá Úkraínu námið og voru þeir þrír talsins, tveir lögfræðingar og einn félagsráðgjafi. Vonir standa til að verkefnin sem þau unnu að í náminu komi til með nýtast við þær erfiðu aðstæður sem þar ríkja.
Hópurinn kom til Íslands í byrjun árs og hefur unnið sleitulaust í fimm mánuði að verkefnum sem öll miða að því að þoka jafnréttismálum áfram í heimalöndum þeirra. Á misserinu luku styrkþegarnir við fimm þverfaglegar námslotur auk þess að skila viðamiklu lokaverkefni sem felst annað hvort í fræðilegri greiningu eða hagnýtu verkefnisskjali. Fjöldi innlendra og erlendra fræðimanna lagði sitt af mörkum til námsins bæði í hlutverkum kennara og leiðbeinenda.
Þetta var sautjánda útskriftin frá skólanum frá því að honum var komið á fót árið 2009 og sú sjötta eftir að hann varð hluti af GRÓ – þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu. Með 26 útskriftarnemum í ár er heildarfjöldi útskrifaðra nemenda orðinn 267 og stækkar hollvinanetið þannig enn frekar. Ef skólinn tekur næstu tvö ár við 23-26 nemendum á ári verður hægt að fagna þrjúhundraðasta nemandanum við útskriftina árið 2027. Fimm nemendur fengu styrk í ár úr Erasmus+ áætluninni og voru úkraínsku nemendurnir þrír einnig á sérstökum styrk íslenskra stjórnvalda. Hin 18 voru á fullum venjulegum GRÓ styrk.
Útskriftarathöfn í Hátíðasal
Útskriftarathöfnin fór fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands og auk styrkþega sóttu hana leiðbeinendur, starfsfólk og sérstakir gestir. Irma Erlingsdóttir, prófessor og forstöðukona GRÓ GEST, stýrði athöfninni og setti hana formlega. Að því loknu fluttu ávörp þær Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Guðrún Eysteinsdóttir, rekstrarstjóri GRÓ GEST, Irma Erlingsdóttir og Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ, afhentu prófskírteini og verðlaunagripi frá Háskóla Íslands og GRÓ-miðstöðinni.
Ávarp styrkþega flutti Christian Samuel Katwesigye frá Úganda. Hann lýsti ánægju nemenda með námið og áskorunum sem þau höfðu mætt í íslenskrum vetri og í gegnum þétt og krefjandi námið og lagði áherslu á mikilvægi félagslegra tengsla og samstöðu sem hluta af reynslunni. Hann sagði m.a: „Við förum héðan ekki aðeins með prófskírteini, heldur einnig með endurnýjaðan tilgang. Sum okkar snúa aftur til ráðuneyta, önnur til grasrótarhreyfinga, háskóla eða fjölmiðla. En við yfirgefum landið með ný verkfæri í farteskinu: gagnrýna hugsun, samstöðu og það sem er enn mikilvægara – samkennd. Samkennd sem á ekkert skylt við meðaumkun en sem felst í róttækri ákvörðun um að líta ekki undan.“
Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari, og Svanur Vilbergsson, gítarleikari, fluttu tónverk við upphaf og milli atriða.
Reyaan Senadhipathi Nadesarajah og Entenela Ndrevataj hlutu Vigdísarverðlaunin svokölluðu fyrir bestu lokaverkefnin. MYND/Kristinn Ingvarsson

Vigdísarverðlaunin
Verðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrum forseta Íslands og verndara Jafnréttisskóla GRÓ, voru veitt fyrir bestu lokaverkefnin í tveimur flokkum og afhent af dr. Thomas Brorsen Smidt, námsstjóra GRÓ GEST og dr. Giti Chandra, rannsóknadósent við GRÓ GEST. Fyrsti flokkurinn tekur til hagnýtra verkefna þar sem styrkþegar fjalla um kynjajafnréttismál í heimalandi sínu og leggja fram hagnýtar lausnir. Seinni flokkurinn snýr að rannsóknum eða rannsóknartillögum sem miða að því að bæta við fræðilega þekkingu um kynjajafnrétti og/eða leggja grunn að doktorsverkefni.
Verkefnin sem koma til álita verða að taka á brýnum áskorunum á vettvangi jafnréttismála í heimalöndum höfunda. Beita þarf kynjafræðilegri greiningu sem byggir á viðurkenndum kenningum og aðferðum með viðeigandi fræðilegum tilvísunum og verkefnin verða að vera vel uppbyggð og rituð. Margir styrkþeganna skiluðu framúrskarandi verkefnum og tíu þeirra hlutu einkunnina 9 eða hærri.
Í flokki hagnýtra verkefna hlaut Reyaan Senadhipathi Nadesarajah verðlaun fyrir verkefnið TransAct Sri Lanka: Stuðningur við borgaralega, pólitíska og félagslega þátttöku trans baráttufólks á Sri Lanka. Verkefnið miðar að því að skapa vettvang fyrir þátttöku trans einstaklinga sem tala tamíl og styðja við hagsmunabaráttu þeirra. Markmiðið er að draga úr jaðarsetningu og stuðla að kerfisbundnum breytingum.
Í flokki rannsókna hlaut Entenela Ndrevataj verðlaun fyrir verkefnið Karlmennska, kynþáttur og landamærapólitík: Eigindleg rannsókn á samkomulagi Ítalíu og Albaníu um fólksflutninga. Verkefnið beitir flókinni kynjafræilegri- og kynþáttagreiningu til að skoða hugmyndafræðilegan grunn evrópskrar innflytjendastefnu og hvernig þjóðernishyggja og hvítleiki móta stefnu ríkja. Entenela er ein þeirra fimm nemenda í ár sem tóku þátt í Jafnréttisskólanum með styrk frá Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins en hún leggur einnig stund á meistaranám í lýðræði og mannréttindum við Sarajevo-háskóla í Bosníu og Herzegóvínu. Entenela er jafnframt fyrsti albanski borgarinn sem stundar nám við Jafnréttisskólann.
Jafnréttisskóli GRÓ heyrir undir Hugvísindasvið Háskóla Íslands en starfsemi hans er þverfagleg og taka þátt í starfsemi hans, sem kennarar og leiðbeinendur, sérfræðingar af öllum fimm fræðasviðum Háskóla Íslands auk fjölmargra gestaprófessora sem koma frá samstarfsháskólum í ólíkum heimshornum.
Útskriftarhópurinn úr GRÓ GEST ásamt kennurum og fulltrúum Háskóla Íslands og GRÓ-miðstöðvarinnar. MYND/Kristinn Ingvarsson