Sveppum safnað á fimmtudag í Heiðmörk
Sveppir eru sannkallað sælgæti og það sem er einna skemmtilegast við þá – þeir vaxa villtir í íslenskri náttúru og ekki síst í skóglendi eins og í Heiðmörk. Það er hins vegar afar mikilvægt að þekkja þá ætu frá þeim vondu og sumir geta reyndar verið eitraðir. Á fimmtudaginn mun vísindafólk HÍ halda í Heiðmörk ásamt Ferðafélagi barnanna til að fræða öll sem vilja um sveppi og hverja megi borða og hverja ekki.
Fólk er hvatt til að sameinast í einkabíla ef kostur er en haldið verður í halarófu inn í Heiðmörk á bílum frá bílastæðinu við Rauðhóla kl. 17 fimmtudaginn 24. ágúst.
„Um 2.100 tegundir sveppa eru skráðar á Íslandi og á hverju ári bætast við nýjar tegundir í þennan sérstaka flokk lífvera,“ segir Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands, en hann mun taka vel á móti göngufólki ásamt Ólafi Patrick Ólafssyni sem kennir m.a. plöntulífeðlisfræði og grasafræði við HÍ. Með þeim verður einnig frítt föruneyti frá Háskólanum til að leiðbeina göngufólki.
Auk þess verður fólk frá Ferðafélagi barnanna á staðnum og leiðbeinir líka göngufólki. Gangan fer fram undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“ en um er að ræða samstarf milli HÍ og Ferðafélagsins hefur staðið frá aldarafmæli HÍ árið 2011.
Að Gísla Más sögn getur það reynst flókið að finna æta sveppi því um tvö þúsund sjálfstæðar tegundir sveppa og sjö hundruð tegundir fléttna vaxa á Íslandi. „Fléttur eru sambýli svepps og þörunga. Af allri þessari fungu eru aðeins um 30 tegundir sveppa ætar á Íslandi og bragðast vel. Þar af eru aðeins rúmlega tíu borðaðar reglulega. Sumar flétturnar eru einnig ætar, þar á meðal fjallagrös og hreindýramosi.“
Hægt er að finna æta sveppi um land allt og því má reikna með að vel beri í veiði á fimmtudag í Heiðmörkinni, sem er kjörlendi fyrir sveppi, en sveppir þrífast alla jafna vel nálægt trjágróðri.
Ætla má að ferðin í heild sinni taki um tvær klukkustundir og Gísli Már hvetur öll til að koma með körfur eða ílát undir fenginn.
„Um 2.100 tegundir sveppa eru skráðar á Íslandi og á hverju ári bætast við nýjar tegundir í þennan sérstaka flokk lífvera,“ segir Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands. MYND/Kristinn Ingvarsson
Hefur þú mikinn áhuga á að borða slímgump?
Í hinni árlegu sveppaferð hafa fjölskyldur notið fegurðar Heiðmerkur og fróðleiks á sama tíma um sveppina. Fólk á alls ekki að láta afar ljót nöfn fæla sig frá því að bragða á góðum sveppum. Sveppir bera nefnilega margir hvergir ansi ógirnileg nöfn. Fótgíma og slímgumpur eru þannig ekki alveg með heppilegasta heitið fyrir matardiskinn en Gísli Már segir að þessir tveir séu afar gómsætir sveppir.
Í ferðinni í Heiðmörk á fimmtudag verður ekki bara sveppunum safnað því fróðleikur um verkun og eldun fylgir með.
Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát fyrir sveppina eins og áður sagði. Þátttaka er alveg ókeypis og öll velkomin.