Skip to main content
18. desember 2024

Styrkir til náms og rannsókna í Japan og á Íslandi

Styrkir til náms og rannsókna í Japan og á Íslandi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Watanabe-styrktarsjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um styrki til náms- og rannsóknadvala í Japan og á Íslandi fyrir skólaárið 2025-2026. Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2025.
 
Sjóðurinn veitir styrki til nemenda og akademískra starfsmanna á öllum fræðasviðum Háskóla Íslands til náms- eða rannsóknadvalar í Japan og það sama gildir um nemendur og vísindamenn við japanska háskóla, sem eiga þess kost að fá styrk til dvalar við Háskóla Íslands. Fjölbreyttur hópur nemenda og starfsfólks fékk styrk úr sjóðnum til náms- og rannsóknardvalar á yfirstandandi skólaári.

Nemendur í grunn- og framhaldsnámi geta sótt um ferða- og uppihaldsstyrk til allt að níu mánaða námsdvalar. Mánaðarlegur uppihaldstyrkur nemur 150.000 JPY vegna dvalar í Japan og 200.000 kr. vegna dvalar á Íslandi. Auk þess geta styrkþegar sem dvelja lengur en einn mánuð sótt um allt að 200.000 kr. í ferðastyrk. Sjóðurinn veitir ekki styrk fyrir skólagjöldum eða öðrum kostnaði. 

Akademískt starfsfólk getur sótt um allt að 500.000 kr. ferða- og dvalarstyrk til styttri dvalar (allt að einum mánuði), sem tengist fræðistörfum eða rannsóknasamstarfi milli Háskóla Íslands og háskóla í Japan. 
 
Tilgangur Watanabe-sjóðsins er að styrkja fræðileg tengsl Íslands og Japans. Stjórn Watanabe-sjóðsins metur umsóknir og velur styrkhafa. Stjórnin áskilur sér rétt til að hafna styrkumsókn. 

Umsóknir og fylgigögn skal senda með tölvupósti á netfangið watanabe@hi.is fyrir miðnætti 1. febrúar 2025. 

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað má finna á vefsíðu Háskóla Íslands

Fyrirspurnum um Watanabe styrktarsjóðinn og umsóknarferli skal beint á netfangið watanabe@hi.is eða í síma 525-4311.

Frá Japanshátíð