Skip to main content
4. desember 2024

Samband kvæða og prósa í Íslendingasögum

Samband kvæða og prósa í Íslendingasögum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Út er komin bókin The Prosimetrum of the Íslendingasögur: Aesthetic and Narrative Effects, í ritstjórn Brynju Þorgeirsdóttur, lektors við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, Stefanie Gropper, Háskólanum í Tübingen, Judy Quinn, Háskólanum í Cambridge og Alexander Wilson, Háskólanum í Leicester.

Meirihluti Íslendingasagna inniheldur kvæði og má því segja að prósimetrum, eða samband kvæða og prósa, sé miðlægt í þessari einstöku bókmenntagrein. Bókin inniheldur tíu ritgerðir þar sem sérstaklega er tekið til rannsóknar samspil kvæða og prósa í sögunum og sú fagurfræði sem þar liggur að baki er greind frá fjölbreyttum sjónarhornum. 

Höfundar eru fræðimenn á sviði norrænna miðaldabókmennta frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Danmörku, Þýskalandi og Íslandi. Þar á meðal fjallar Guðrún Nordal, prófessor við Háskóla Íslands og forstöðumaður Árnastofnunar, um dróttkvæði og höfundarauðkenni í greininni „Skaldic Verse as an Authorial Signature“ og Brynja Þorgeirsdóttir fjallar um tilfinningatjáningu í greininni „Sensibilities in Saga Prosimetrum“.

Bókin er gefin út í opnum aðgangi hjá forlaginu De Gruyter.

Brynja Þorgeirsdóttir, lektor við Íslensku- og menningardeild HÍ, er einn ritstjóra bókarinnar The Prosimetrum of the Íslendingasögur: Aesthetic and Narrative Effects.