Skip to main content
14. júní 2024

Ríflega 2.600 kandídatar brautskrást frá Háskóla Íslands 15. júní

Ríflega 2.600 kandídatar brautskrást frá Háskóla Íslands 15. júní - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands brautskráir 2.652 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi laugardaginn 15. júní. Sem fyrr verður brautskráð í tvennu lagi og fara brautskráningarathafnirnar fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Beint streymi verður frá báðum athöfnum.

Á fyrri brautskráningarathöfninni, sem hefst kl. 10, taka kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði og Hugvísindasviði við prófskírteinum sínum. Samtals brautskrást 779 frá Félagsvísindasviði, 635 frá Heilbrigðisvísindasviði og 328 frá Hugvísindasviði. Í brautskráningarhópnum eru m.a. fyrsti nemandinn sem lýkur námi af námsleið í alþjóðaviðskiptum og verkefnastjórnun, sem er alfarið kennd á ensku, og fyrsti nemandinn sem brautskráist með meistaragráðu í afbrotafræði frá skólanum.  

Bein útsending frá fyrri brautskráningarathöfn

Seinni athöfnina, sem hefst kl. 13.30, sækja kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Alls brautskrást 648 frá Menntavísindasviði og 262 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. 

Bein útsending frá seinni brautskráningarathöfn

Samanlagt brautskrást því 2.652 kandídatar frá Háskóla Íslands á laugardag með 2.656 prófgráður. 

Líkt og áður mun Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytja ávarp við athafnirnar og þá munu Ingvar Þór Björnsson, sem útskrifast með BA-gráðu í sagnfræði, og Berglind Bjarnadóttir, sem brautskráist með BS-próf í lífefna- og sameindalíffræði, ávarpa gesti fyrir hönd brautskráningarkandídata á athöfnunum tveimur. 

Háskóli Íslands brautskráði 423 kandídata í febrúar síðastliðnum og því hafa alls 3.075 útskrifast frá skólanum það sem af er ári.

Kandídatar hafa fengið sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna en starfsfólk Háskólans verður enn fremur á staðnum og leiðbeinir kandídötum um sætaskipan.

Frá brautskráningu