Nýtt rit um bótarétt eftir Eirík og Viðar Má

Bókaútgáfan Codex hefur gefið út ritið Bótaréttur I eftir Eirík Jónsson, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands, og Viðar Má Matthíasson, hæstaréttardómara. Bótaréttur I fjallar um skaðabótarétt, þ.e. þær reglur sem lúta að skaðabótum utan samninga. Þar er meðal annars fjallað um skilyrði skaðabótaábyrgðar, þ.á.m. reglurnar um grundvöll skaðabótaábyrgðar og þær reglur sem gilda um mörk og takmarkanir slíkrar ábyrgðar. Þá er fjallað um það tjón sem skaðabótum er ætlað að mæta, skaðabótakröfuna og fjárhæð skaðabóta.
Þann 26.mars sl. var skrifað undir útgáfusamning tveggja rita eftir þá Eirík og Viðar Má. Fyrra ritið, Bótaréttur I, sem nú er komið út, fjallar skv. framangreindu um skaðabótarétt. Seinna ritið, Bótaréttur II, er heildstætt rit á sviði vátryggingaréttar og er væntanlegt innan tíðar. Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun samningsins. Frá vinstri: Gunnar Atli Gunnarsson, framkvæmdastjóri Bókaútgáfunnar Codex, Eiríkur Jónsson prófessor og Viðar Már Matthíasson hæstaréttardómari.

