Skip to main content
5. mars 2024

Ný bók um norræna menn í Austurvegi

Ný bók um norræna menn í Austurvegi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Út er komið ritið The Making of the Eastern Vikings. Rus and Varangians in the Middle Ages hjá bókaforlaginu Brepols í Turnhout í Belgíu. Ritstjórar eru Sverrir Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði HÍ, Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Mála- og menningardeild HÍ og Daria Segal, doktorsnemi í sagnfræði við HÍ og stundakennari, en bókin er afrakstur rannsóknarverkefnisins Legends of the Eastern Vikings sem styrkt var af Rannsóknasjóði.

Í bókinni er að finna ellefu greinar um norræna menn og ýmis tengsl þeirra í Austurvegi eftir sagnfræðinga, bókmenntafræðinga, málvísindamenn og fornleifafræðinga frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Þýskalandi, Englandi, Bandaríkjunum, Ísrael, Rússlandi og Úkraínu. Í inngangi eru forsendur verksins skýrðar en því er ætlað að setja rannsóknir á norrænum mönnum í Austurvegi í nýtt samhengi með hliðsjón af kenningum um menningarlegt minni. Frásagnir um Rus og væringja eru greindar með hliðsjón af því umhverfi sem þær urðu til í en einnig er orðræðan um norræna menn í Austurvegi í nútímanum greind og notkun hennar í margvíslegum pólitískum og fræðilegum tilgangi.

Áður hefur komið út verkið The Varangians. In God´s Holy Fire (2020), á vegum sama rannsóknaverkefnis.

The Making of the Eastern Vikings. Rus and Varangians in the Middle Ages er fáanleg í Bóksölu stúdenta.

Daria Segal, Sverrir Jakobsson og Þórir Jónsson Hraundal, ritstjórar bókarinnar The Making of the Eastern Viking. Rus and Varangians in the Middle Ages.

Daria Segal, Sverrir Jakobsson og Þórir Jónsson Hraundal, ritstjórar bókarinnar The Making of the Eastern Viking. Rus and Varangians in the Middle Ages.