Skip to main content
20. ágúst 2025

Komdu með í sveppaferð í Heiðmörk

Komdu með í sveppaferð í Heiðmörk - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands og Ferðafélag barnanna bjóða áhugasömum að slást í för í með vísindafólki skólans í sveppatínsluferð í Heiðmörk á morgun, fimmtudaginn 21. ágúst. Ferðin er tilvalin fyrir öll sem vilja kynnast undraveröld sveppannam, hvort sem fólk hefur áður tínt sveppi eða er að stíga fyrstu skrefin.

Í ferðinni fá þátttakendur leiðsögn í því hvernig greina má algengustu matsveppina, hvernig velja á rétta sveppi og hvaða tegundir ber að forðast. Jafnframt verður fjallað um vistfræðilegt hlutverk sveppa í náttúrunni og næringargildi þeirra. Ferðin sameinar útivist, fróðleik og skemmtilega samveru – og hver veit nema þú komir heim með góðan feng í körfunni!

Fararstjórar frá Ferðafélagi barnanna segja að sveppir séu algert sælgæti og það sem sé skemmtilegast við þá – þeir vaxi villtir í íslenskri náttúru! Það er hins vegar afar mikilvægt að þekkja þá ætu og góðu frá þeim vondu og jafnvel eitruðu. 

Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands, ætlar einmitt að gera þetta, að leiða göngufólk í allan sannleika um sveppi í göngunni á morgun. 

Mæting er kl. 17 á Borgarstjóraplanið og er þátttaka ókeypis, það þarf bara að koma sér á staðinn. Ætla má að ferðin í heild sinni taki um 2 klukkustundir. 

Gangan á morgun er árviss haustfagnaður fyrir alla fjölskylduna þar sem sveppum er safnað í Heiðmörkinni og hvetur Gísli Már fólk til að koma með körfur eða ílát undir fenginn. 

Ætir sveppir eru um land allt

Sveppagangan hefur unnið sér fastan sess í tilverunni og í henni hafa fjölskyldur notið fegurðar Heiðmerkur og fróðleiks á sama tíma um sveppi. Gísli Már verður ekki einn á ferð við að leiðbeina því Ólafur Patrick Ólafsson, lífrræðikennari í HÍ, mætir líka ásamt fjölda nemenda sem allir hafa þekkingu á íslenskum sveppum. 

„Um 2.100 tegundir sveppa er skráðar á Íslandi og á hverju ári bætast við nýjar tegundir í þennan sérstaka flokk lífvera,“ segir Gísli Már og bætir því við að sumar sveppategundir hafi m.a. flust hingað með trjátegundum því margar þeirra eigi sveppi sem sambýlisveru, t.d. lerki og fura.

Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands, og samstarfsfólk hans leiðir göngufólk í allan sannleika um sveppi í göngunni á morgun. MYND/Kristinn Ingvarsson

Að Gísla sögn getur það reynst flókið að finna æta sveppi í þessum mikla fjölda sveppategunda og sjö hundruð tegundum fléttna sem vaxa á Íslandi. „Fléttur eru sambýli svepps og þörunga. Af allri þessari fungu eru aðeins um 30 tegundir sveppa ætar á Íslandi og bragðast vel. Þar af eru aðeins rúmlega tíu borðaðar reglulega. Sumar flétturnar eru einnig ætar, þar á meðal fjallagrös og hreindýramosi.“
 
Hægt er að finna æta sveppi um land allt og því má reikna með að vel beri í veiði á miðvikudag í Heiðmörkinni sem er kjörlendi fyrir sveppi. „Bestu sveppasvæðin landsins eru á Vesturlandi, í Borgarfirði og á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum en þar má finna kóngssveppi og kantarellur,“ segir Gísli Már. 

Fjóluhelma, iltrektla, kúalubbi, fótgíma og mjúkfísi 

Í ferðinni í Heiðmörk á miðvikudag verður ekki bara sveppunum safnað því fróðleikur um verkun og eldun fylgir með. Sveppir þrífast alla jafna nálægt trjágróðri. Nöfn á sveppum á íslensku eru mörg hver algerlega mögnuð en á miðvikudag er mögulegt að göngufólk finni gráserk, grávönd, anístrektlu, glanstrefil, gullkornhettu, slímgump, guleggjahelmu, furusvepp, fjóluhelmu, iltrektlu, kúalubba, grænhneflu, fótgímu og mjúkfísi en þeir dafna allir nærri trjám eins og í Heiðmörk. „Svo má kannski finna gulltoppu, sem er eitruð,“ segir Gísli Már,  „og líka lerkisveppi, gullbrodda og sortukúlu.“

Gísli Már segir að framangreindar tegundir séu ekki allar ætar „en þessar tegundir eru hins vegar gómsætar: furusveppur, kúalubbi, lerkisveppur, sortukúla, fótgíma, mjúkfísi og slímgumpur.“ 
 
Við matreiðslu sveppa er allra mikilvægast að fólki viti að það hafi æta tegund á milli handanna. Næstmikilvægast er að elda eða steikja sveppi vel því sumir geta valdið magaverkjum ef þeir eru ekki eldaðir nógu lengi.
 
Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát fyrir sveppina eins og áður sagði en gangan er hluti af samstarfi Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“ sem hefur staðið frá aldarafmæli skólans árið 2011. 

Í ferðunum blandast reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskóla Íslands saman í áhugaverðum gönguferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðin á fimmtudag er farin í samvinnu við Ferðafélaga barnanna sem er sproti innan Ferðafélags Íslands en Háskólinn og Ferðafélag barnanna hafa unnið saman að fjölda ferða undanfarin ár.