Hvatningarverðlaun jafnréttismála afhent í fjórða sinn
Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent í fjórða sinn þriðjudaginn 26. september í Hátíðasal Háskóla Íslands á fundi sem ber yfirskriftina, „Góð ráð um jafnréttismál“. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mun afhenda verðlaunin.
Fundurinn hefst kl. 8.30 og munu framsögumenn ræða hagnýtar leiðir til að auka jafnrétti vinnustöðum. Þær sem taka til máls eru Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, og Gyða Margrét Pétursdóttir, doktor í kynjafræði og dósent við Háskóla Íslands. Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, mun stýra fundi.
Að verðlaununum standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, landsnefnd UN Women á Íslandi, Samtök atvinnulífsins og Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð. Markmiðið með þeim er að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem sett hafa jafnrétti á oddinn og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Íslandsbanki, Orkuveita Reykjavíkur og Rio Tinto Alcan hafa áður hlotið verðlaunin.
Verðlaunin eru afhent árlega þeim fyrirtækjum sem þykja skara fram úr í jafnréttismálum. Leitað er eftir tilnefningum frá fyrirtækjum þar sem áhersla er lögð á neðangreinda þætti í starfsemi þeirra:
- Tekið er mið af jafnréttismálum í allri stefnumótun fyrirtækisins
- Jafnrétti kynjanna er í hávegum haft í innri og ytri samskiptum fyrirtækisins
- Jöfn hlutföll kynjanna í stjórn, stjórnendastöður og aðrar almennar stöður
- Auknum möguleikum beggja kynja til starfsframa
- Jöfnum launum kynjanna
- Aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið
Sérstaklega er leitað að fyrirtækjum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Stefna fyrirtækis í jafnréttismálum hefur skýran tilgang og markmið
- Jafnrétti hefur fest rætur og sýnt er fram á varanleika
- Vakin er athygli á rekstrarlegum ávinningi af jafnrétti
- Jafnréttissýnin er hvetjandi fyrir önnur fyrirtæki
- Sýnt er frumkvæði og nýsköpun sem stuðlar að auknu jafnrétti kynjanna