Fróðleiksferð um Búrfellsgjá

„Búrfellsgjá er hluti af eldvirka gosbeltinu á Reykjanesskaganum sem skilur að tvo af stærstu jarðskorpuflekum jarðar, Evrasíuflekann og Norður-Ameríkuflekann. Búrfellsgjá varð til í heilmiklu eldgosi fyrir um átta þúsund árum. Sjálf gjáin sem gengið er um er tómur farvegur hraunsins þar sem það rann frá eldgígnum til sjávar í Garðabæ og Hafnarfirði og kallast slíkir farvegir hrauntraðir,“ segir Snæbjörn Guðmundsson, doktorsnemi í jarðfræði og kennari í Háskólalest Háskóla Íslands. Hann mun leiða gönguferð um Búrfellsgjá að gígnum Búrfelli þriðjudagskvöldið 5. maí.
Snæbjörn mun útskýra þau náttúrufyrirbrigði sem fyrir augu bera en þetta svæði er stórkostlegur ævintýraheimur og sýnir vel hvernig Ísland varð til.
„Ísland er hluti af einu eldvirkasta svæði jarðar sem hefur verið virkt í tugmilljónir ára, alveg frá því Norður-Atlantshaf byrjaði að opnast. Ísland varð því einfaldlega til í síendurteknum eldgosum á þessu svæði, stórum og smáum, en elstu hlutar landsins sem nú eru ofan sjávar eru um 14 til 16 milljón ára gamlir á Vestfjörðum og Austfjörðum. Í miðju landsins verður hins vegar nýtt land til í eldgosum, eins og varð í Búrfellsgjá,“ segir Snæbjörn.
Á leiðinni verða ýmsir hellar, sprungur og gjótur kannaðar, m.a. hin sögufræga Vatnsgjá.
Snæbjörn segir að jarðfræðiþekking auki ánægjuna af öllum ferðalögum, sérstaklega á Íslandi þar sem jarðfræðin sé lifandi og margt áhugavert að gerast. „Á gönguferðum um landið gefst gott tækifæri til að skoða fínni smáatriði í landslaginu og velta fyrir sér hvernig mismunandi fyrirbæri urðu til,“ segir Snæbjörn sem er býsna spenntur fyrir ferðinni.
Brottför verður kl. 17 á einkabílum frá bílastæðinu við Vífilsstaði í Garðabæ og ekið verður í halarófu inn í Heiðmörk. Áætlað er að hún taki á bilinu 3-4 klst.
Ferðin er farin í samstarfi við Ferðafélag barnanna en hún er liður í samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands um göngu- og hjólaferðir undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“. Í þessum gönguferðum blandast reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskóla Íslands saman á áhugaverðan hátt.
Þátttaka er auðvitað ókeypis eins og alltat og allir eru velkomnir.

