Árangurinn er lykill ykkar að framtíðinni

- 2.779 kandídatar brautskráðir frá öllum fræðasviðum HÍ
- Meira en 30 þúsund hafa brautskráðst frá því að Jón Atli Benediktsson tók við sem rektor HÍ
- Traust alþjóðlegt orðspor HÍ gefur prófgráðum kandídatanna mikla vigt og opnar þeim nýjar dyr
„Framlag ykkar mun jafnvel ráða úrslitum um svipmót aldarinnar. Það er ykkar að standa vörð um málfrelsið og mikilvægi þess að leita sannleikans og uppgötva nýjungar sem geta orðið öllum til heilla. Frá þeim sjónarhóli er 21. öldin öld möguleikanna, öld vísinda, almennrar menntunar og framfara á öllum sviðum. Öldin ykkar.“
Þetta sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands í Laugardalshöll fyrr í dag þegar hann ávarpaði kandídata skólans við síðustu brautskráninguna sem hann leiddi fyrir hönd þessa stærsta og öflugasta háskóla landsins.
Yfir þrjátíu þúsund einstaklingar hafa brautskráðst frá skólanum frá því Jón Atli tók við rektorsembætti fyrir réttum áratug. Í dag brautskráðust samanlagt 2.779 kandídatar frá öllum fræðasviðum HÍ en háskólarektor hvatti þá alla til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að grípa tækifærin sem gæfust. Þar kvað hann mestu skipta að hafa góðan ásetning, áræði og agaðan vilja ásamt traustum undirbúningi sem einmitt er falinn í háskólanámi.
„Árangurinn er lykill ykkar að framtíðinni sem opnar ný tækifæri, greiðir leiðina að fjölbreyttum störfum og gefur ykkur færi á að dýpka skilning ykkar á heiminum, samfélaginu og ykkur sjálfum.“
Miklir umbrotatímar
Jón Atli vék talinu að þeim miklu umbrotatímum sem við nú lifum og reynslunni sem unga fólkið sem á hann hlýddi hefði aflað sér á örskömmum tíma.
„Þið hafið meðal annars upplifað efnahagshrun, heimsfaraldur og mestu styrjaldarátök í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. „Allt getur gerst“, gætu því verið kjörorð ykkar kynslóðar. En þið hafið líka upplifað undraverðar framfarir í vísindum og tækni sem sumar eru svo stórstígar að erfitt er að skilja þær til fulls nema fyrir tilstilli markvissra rannsókna á öllum fræðasviðum,“ sagði Jón Atli.
Í máli hans kom skýrt fram að það væri hlutverk unga fólksins að halda vöku sinni gagnvart hugmyndafræðilegum öfgum, loftslagsbreytingum af mannavöldum, stríðsátökum, faröldrum og misskiptingu auðs og valds.
Stakkaskipti í aðstöðu og kennsluháttum
Háskóli Íslands hefur tekið miklum stakkaskipum á síðasta áratug í stjórnartíð Jóns Atla,
hvort sem litið er til kennsluhátta og námsaðstöðu, rannsóknainnviða og -afkasta eða umfangs alþjóðlegs samstarfs.
Háskóli Íslands hefur allan þann tíma verið í allra fremstu röð þeirra sem njóta mests trausts á Íslandi samkvæmt árlegri viðhorfsmælingu.
„Háskóli Íslands er ein af grunnstoðum íslensks samfélags og sú stofnun sem vafalítið hefur ráðið mestu um sjálfsmynd þjóðarinnar og stöðu hennar í alþjóðasamfélaginu,“ sagði rektor.
Þá hefur uppbygging á háskólasvæðinu verið gríðarleg, bæði í húsakosti og í hátæknilausnum til að styðja við kennslu og rannsóknir auk þess sem tengsl við atvinnulíf og samfélag hafa verið stóraukin.
„Samkvæmt nýlegri alþjóðlegri könnun er vísindafólk við Háskóla Íslands meira en tvöfalt líklegra til að stunda rannsóknir og birta vísindagreinar með fyrirtækjum í atvinnulífinu en almennt gerist í Evrópu og Bandaríkjunum. Þá hefur uppbygging Vísindagarða skólans verið hröð en þar hafa skapast fjölbreytileg tækifæri til nýsköpunar, á sviði tækni, samfélags og menningar. Frumkvöðlastarf í Háskóla Íslands hefur aldrei verið blómlegra en nú, bæði á meðal starfsfólks og nemenda. Þar hafa rannsóknir á sögu okkar, tungu, siðum, lögum og samfélagsgerð skipt sköpum,“ sagði Jón Atli.
Háskólarektor vék einnig í erindi sínu að þeim umskiptum sem hefðu orðið síðasta aldarfjórðung á eðli skólans sem hefði farið frá því að vera traustur grunnnámsskóli yfir í að vera opinn rannsóknaháskóli í fremstu röð alþjóðlega.
„Sem dæmi um þessa breytingu,“ sagði Jón Atli, „má nefna að um síðustu aldarmót voru birtingar vísindafólks Háskóla Íslands í alþjóðlegum vísindatímaritum um 200 talsins, en eru nú, 25 árum síðar, komnar í um 1.600. Þennan mikla árangur má rekja til markvissrar stefnu um að efla rannsóknanámið og stórauka sókn í innlenda, en ekki síst erlenda rannsóknarsjóði. Traust alþjóðlegt orðspor Háskóla Íslands gefur prófgráðum ykkar, kæru kandídatar, enn meiri vigt og opnar ykkur nýjar dyr.“
Jón Atli vék einnig að rektorsskiptum sem verða um næstu mánaðamót og óskaði verðandi rektor, Silju Báru R. Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði, farsældar í öllum hennar störfum.
„Ég er sannfærður um að Háskólinn mun áfram blómstra um ókomin ár,“ sagði rektor.
„Háskóli Íslands er ein af grunnstoðum íslensks samfélags og sú stofnun sem vafalítið hefur ráðið mestu um sjálfsmynd þjóðarinnar og stöðu hennar í alþjóðasamfélaginu,“ sagði rektor í ræðu sinni. MYND/Kristinn Ingvarsson