Skip to main content
19. maí 2025

Á fjórða tug doktorsstyrkja úthlutað við HÍ

Á fjórða tug doktorsstyrkja úthlutað við HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Rannsóknir sem tengjast félagslegum hreyfanleika og menntun á Íslandi, íslenskum knattspyrnukonum, hlutverki kæliferils spendýrafruma í frjósemi karldýra, bréfaskriftum í Íslendingasögunum og tengslum hopunar jökla og eldumbrota á Íslandi eru meðal þeirra fjölbreyttu rannsóknarverkefna sem hljóta styrk úr doktorsstyrkjasjóðum HÍ í ár. Alls fá 34 verkefni styrk að þessu sinni. 

Doktorsnám við Háskóla Íslands hefur eflst mjög á þessari öld og það endurspeglast m.a. í mikilli samkeppni um styrki úr doktorssjóðum skólans. Verkefni matsaðila var afar erfitt enda barst 161 umsókn um doktorsstyrki í ár sem gefur til kynna mikla grósku og metnað í rannsóknastarfi sem Háskólinn getur verið stoltur af. Að þessu sinni var mögulegt að styðja 34 doktorsverkefni, sem fyrr segir, og hljóta verkefni af öllum fræðasviðum styrki.

Styrkirnir koma flestir úr Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands en einnig veittu Vísindagarðar Háskóla Íslands tvo styrki og Veðurstofa Íslands, Menningar- og framfarasjóður Ludvig Storr og utanríkisráðuneytið einn styrk hver. 

Styrkt verkefni eru m.a. á sviðum félagsfræði, hagfræði, félagsráðgjafar, alþjóðasamskipta, sálfræði, lyfjafræði, læknisfræði, lífvísinda, heimspeki, menningarfræði, sagnfræði, íslenskra miðaldabókmennta, íþrótta- og heilsufræði, menntavísinda, jarðvísinda, ferðamálafræði, rafmagns- og tölvuverkfræði, tölvunarfræði, efnaverkfræði, eðlisfræði og stærðfræði. 

Yfirlit yfir styrkt verkefni má sjá á vef doktorssjóða HÍ.

Háskóli Íslands óskar styrkþegum og leiðbeinendum þeirra innilega til hamingju með styrkina.
 

Háskólatorg

Þrjátíu og fjórum styrkjum hefur verið úthlutað úr doktorsstyrkjasjóðum HÍ í ár. MYND/Kristinn Ingvarsson