Skip to main content

Vefkynning - Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað

Vefkynning - Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. maí 2025 17:00 til 17:30
Hvar 

Vefkynning

Nánar 
Vefkynning
Öllum opin
  • Hefur þú áhuga á sköpun og sjálfbærni?
  • Langar þig í verklegt og skapandi nám í einstakri náttúru?

Kíktu á vefkynningu um Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað - framtíðarmenntun sem snertir huga, hönd og hjarta. Námið er 60 ECTS grunndiplóma eða aukagrein við HÍ sem opnar möguleika á að tengja sjálfbærni og skapandi vinnu við sitt fag- eða áhugasvið.

Á vefkynningunni færðu innsýn í:

  • Hvernig námið er uppbyggt og hvaða námskeið eru í boði.
  • Aðstöðuna á Hallormsstað
  • Tækifæri til að spyrja spurninga

Kynningin fer fram á netinu á Zoom og er öllum opin. Hægt að skrá sig með því að smella á „mæta“ viðburðinum á Facebook.
Umsóknarfrestur Háskóla Íslands í nám í Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað er til og með 5. júní 2025.

Háskóli Íslands á Hallormsstað byggir á grunni Hallormsstaðaskóla (frá 1930) þar sem nám í skapandi sjálfbærni sameinar huga, hönd og hjarta.

Vefkynning - Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað