Rússneska þjóðskáldið Alexander Púshkín og fjölskyldusetur hans

Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 107
Erindi og vinnustofa sérfræðinga frá Púshkínsafninu „Míkhajlovskoje“ í Rússlandi
Fimmtudaginn 5. apríl munu sérfræðingar frá Púshkínsafninu „Míkhajlovskoje“ í Rússlandi fjalla um rússneska þjóðskáldið Alexander Púshkín (1799-1837) og fjölskyldusetur hans, Míkhajlovskoje, sem gert hefur verið að ríkissafni og þjóðminjasetri. Sagt verður frá ritstörfum skáldsins á setrinu og kynnt verða námskeið og önnur starfssemi safnsins. Einnig verður boðið upp á leiðsögn í skrift með gæsafjaðurpenna og þátttakendur spreyta sig á að skrifa upp tilvitnanir í frægasta verk Púshkíns, Jevgení Onegín – á rússnesku, ensku eða íslensku.
Erindið er öllum opið og verður flutt á rússnesku með túlkun á ensku.
Viðburðurinn fer fram 5. apríl í Veröld, stofu 107, fimmtudaginn 5. apríl, 13:30-15:00
Að viðburðinum standa Púshkínsafnið „Míkhajlovskoje“ í Rússlandi, Rússneskan við Mála og menningardeild Háskóla Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og sendiráð Rússneska sambandsríkisins á Íslandi.
Alexander Púshkín
