Háskóli Íslands á Hallormsstað - opið hús

Hvenær
17. maí 2025 13:00 til 15:00
Hvar
Hallormsstaður
Nánar
Öll velkomin
Gestir eru velkomnir á Hallormsstað til að kynna sér starfsemi Háskóla Íslands þar, námið í Skapandi sjálfbærni og þau fjölbreyttu verkefni sem unnin eru í tengslum við námið.
Heitt á könnunni og léttar veitingar í boði.
Námið í skapandi sjálfbærni er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Hallormsstaðaskóla og byggir á fyrstu skólanámskrá Hallormsstaðaskóla, sem á sér sterkan grunn og gildi sem eiga vel við í nútímanum.
