Doktorsvörn í matvælafræði - Clara Anne Thérèse Jégousse

Aðalbygging
Hátíðasalur
Þriðjudaginn 1. apríl 2025 ver Clara Anne Thérèse Jégousse doktorsritgerð sína í matvælafræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Örverusamfélög á Íslandsmiðum rannsökuð með víðerfðamengja raðgreiningum. Exploration of microbial communities from Icelandic marine waters using metagenomics.
Andmælendur eru dr. Alexander Sczyrba, prófessor við Bielefeld University, Þýskalandi, og dr. Ian Salter, rannsóknastjóri við Havstovan – hafrannsóknastofnun Færeyja.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Viggó Þór Marteinsson, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild. Auk hans var dr. María Guðjónsdóttir, prófessor við sömu deild, meðleiðbeinandi og í doktorsnefnd sátu dr. René Groben, verkefnastjóri hjá Matís, dr. Pauline Vannier, lektor við Université de Toulon, og dr. Arnar Pálsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild.
Ólöf Guðný Geirsdóttir, deildarforseti Matvæla- og næringarfræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.
Ágrip
Örverur gegna lykilhlutverki í því að viðhalda heilbrigði og fæðukerfi hafsins og við að stýra næringarefnahringrás hafsins. Við Íslandsstrendur, þar sem heitir Atlantshafsstraumar og kaldir norðurskautsstraumar mætast, myndast einstakt umhverfi og lífríki sjávar. Þó svo að rannsóknir hafi staðið yfir á frumframleiðni frá miðju síðustu aldar með aðstoð smásjáa og gervitunglmynda hafa rannsóknir á flokkunarfræði örvera á umhverfiserfðamengjum í íslenskri lögsögu verið takmarkaðar. Meginmarkmið doktorsrannsóknarinnar var því að skoða hvaða tegundir örvera finnast í íslenskri lögsögu, í hvaða hlutföllum, hvert hlutverk þeirra er í vistríki sjávar og hvaða umhverfisþættir hafa áhrif á dreifingu þeirra.
Meginniðurstöður ritgerðarinnar eru að nauðsynlegt er að kanna örveruflóru hafsins allt árið um kring og einnig mismunandi dýpi. Niðurstöðurnar afhjúpa samhengi örverusamfélaga og umhverfisþátta og leggja grunn að frekari rannsóknum. Opin gögn úr þessari rannsókn mynda viðmið fyrir frekari rannsóknir á vistfræðilegum ferlum og sjálfbærri nýtingu auðlinda hafsins við Ísland á tímum hnattrænna loftslagsbreytinga.
Abstract
Marine microorganisms are vital in maintaining ocean health by supporting food webs and regulating biogeochemical cycles. The ocean around Iceland, where warm Atlantic and cold Arctic currents meet, is a unique marine environment. While primary production in Icelandic waters has been monitored since the 1950s with microscopy and satellite imaging, molecular insights into microbial taxonomic and metabolic diversity remain limited. This thesis investigates the microbial communities in Icelandic marine waters using metagenomics. The main objectives were to find out what species can be detected in Icelandic marine waters? in what proportions? what is their potential function in the marine ecosystem? and how do environmental factors shape their distribution?
The findings of this thesis offer insights into the relationships between microbial communities and their environments, establishing a foundation for future research. The publicly available datasets from this study serve as a baseline, supporting ecosystem modelling and sustainable management of Icelandic marine waters in a changing climate.
Um doktorsefnið
Clara Anne Thérese Jégousse fæddist í Frakklandi árið 1991. Hún lauk BS-gráðu í efnafræði árið 2014 og meistaragráðu í lífupplýsingatækni árið 2016 við Háskólann í Nantes í Frakklandi. Hún flutti til Íslands og hóf doktorsnám sitt árið 2017 undir handleiðslu prófessors Viggós Marteinssonar. Eiginmaður Clöru er Tómas Ármann Hafsteinsson, dóttir þeirra er Viktoría Margrét, fædd 2023.
Clara Anne Thérèse Jégoussever doktorsritgerð sína í matvælafræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands þriðjudaginn 1. apríl
