Arney Einarsdóttir ver doktorsritgerð sína á sviði mannauðsstjórnunar
Aðalbygging
Hátíðasalur
Arney Einarsdóttir ver doktorsritgerð sína á sviði mannauðsstjórnunar föstudaginn 2. febrúar næstkomandi kl. 14:00. Ritgerðin ber heitið. Þroskastig stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar og áhrif á starfsfólk. Strategic HRM maturity and its influence on employee-related outcomes
Andmælendur eru dr. David Guest, prófessor við Kings College London og dr. Paul Boselie, prófessor við Utrecht háskóla. Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Ingi Rúnar Eðvarðsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Auk hans sátu í doktorsnefnd dr. Chris Brewster, prófessor við Henley Business School við Reading háskóla og dr. Mila Lazarova, dósent við Simon Fraser Háskóla.
Inga Jóna Jónsdóttir, dósent og varadeildarforseti viðskiptafræðideildar stjórnar athöfninni
Ágrip af rannsókn
Markmið rannsóknarinnar var að kynna hugtakið og hugsmíðina Þroskastig stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar og varpa ljósi á hvernig það hefur áhrif á sköpun virðisauka í upplifun, viðhorfum og hegðun starfsfólks. Athygli er sérstaklega beint að áhrifum stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar á upplifun starfsfólks, eða frá þroskastigi stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar til hegðunar starfsfólks. Líkan sem lýsir áhrifum stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar er prófað. Leitast er við að dýpka skilning á því hvernig stefnumiðuð mannauðsstjórnun hefur áhrif á upplifun starfsfólks, viðhorf þess og hegðun.
Stuðst er við víða hugsmíð þar sem stigvaxandi þroskastig stefnumiðaðrar stjórnunar eru skilgreind og aðgerðabundin óháð stefnu og til notkunar í ólíkum atvinnugreinum og starfsgreinum. Áherslan er á stefnufestu á fimm lykilsviðum mannauðsstjórnunar fremur en aðferðir. Meðal starfsfólks er upplifun (á stuðningi, sanngirni og árangri mannauðsstjórnunar), viðhorf (starfsánægja og hollusta við vinnuveitanda) og hegðun (þegnhegðun í þágu fyrirtækis/stofnunar og samstarfsfólks) mæld. Rannsóknin er margþrepa með innbyggða tímatöf. Gagna var aflað meðal 128 mannauðsstjórnenda úr öllum greinum atvinnulífs á Íslandi, og nokkrum mánuðum síðar meðal 4863 starfsmanna í viðkomandi fyrirtækjum og stofnunum.
Niðurstöður benda til þess að áhrif þroskastigs stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar á hegðun starfsfólks miðlist í gegnum upplifun og viðhorf starfsfólks. Niðurstöður varpa einnig nýju ljósi á hlutverk upplifunar starfsfólks (employee perceptions) í orsakasamhenginu frá stefnumiðaðri mannauðsstjórnun til hegðunar starfsfólks og benda til þess að upplifun starfsfólks á árangri mannauðsstjórnunar og upplifun á stuðningi hafi lykilhlutverki að gegna. Líta má þó á viðhorf starfsmanna (starfsánægja og viðhorf til vinnuveitanda) sem veika hlekkinn (vulnerability factor) í keðjunni þar sem þau geta orðið fyrir neikvæðum áhrifum þegar fyrirtæki verða stefnumiðuð í mannauðsmálum. Upplifun starfsfólks, á árangri mannauðsstjórnunar og stuðningi á vinnustað, virðist þar þó hafa hlutverki að gegna sem mikilvægur varnarhlekkur (protective factor) gegn neikvæðum áhrifum stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar á viðhorf starfsfólks til starfs síns og vinnuveitanda.
Þroskastig stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar á sviði samskipta og launa og umbunar spá best fyrir um hvoru tveggja; upplifun starfsmanna og hegðun í starfi. Einnig hefur þroskastig á sviði þjálfunar- og þróunarmála áhrif á upplifun starfsmanna. Aðeins þroskastig stefnumiðunar mannauðsstjórnunar á sviði samskipta hefur bein jákvæð áhrif á viðhorf starfsmanna. Upplifun starfsfólks skýrir þar að auki betur hegðun starfsfólks á vinnustað en viðhorf starfsfólks og upplifun starfsfólks á árangri á sviði mannauðsmála skýrir best hegðun starfsfólks á vinnustað.
Framlag rannsóknarinnar felst í að auka skilning á því hvernig ferlar stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar (SHRM processes) geta skapað virðisauka meðal starfsfólks. Niðurstöður hafa einnig hagnýta þýðingu og gefa vísbendingar um hvernig megi verja starfsfólk fyrir neikvæðum áhrifum, sem og styrkja jákvæð áhrif, er fyrirtæki og stofnanir verða stefnumiðaðri á sviði mannauðsstjórnunar.
Um doktorsefnið
Arney Einarsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1962. Hún lauk stúdentsprófi frá MH árið 1985, BS-prófi frá California State Polytechnic University, Pomona árið 1990 og Ms-prófi frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands árið 2004. Arney hefur starfað sem lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í mannauðsstjórnun þar sl. 12. ár. Hún hefur m.a. stýrt þátttöku Íslands í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi um 40 háskóla í CRANET samstarfsnetinu. Tilgangur þess er að standa fyrir reglubundnum rannsóknum á mannauðsstjórnun í öllum aðildarlöndunum til að auka þekkingu á þróun mannauðsstjórnunar í heiminum og gera samanburðarrannsóknir mögulegar.
Hafa má samband við Arneyju Einarsdóttur í síma 861-0200 eða tölvupósti arney@hi.is
Arney Einarsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1962. Hún lauk stúdentsprófi frá MH árið 1985, BS-prófi frá California State Polytechnic University, Pomona árið 1990 og Ms-prófi frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands árið 2004. Arney hefur starfað sem lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í mannauðsstjórnun þar sl. 12. ár. Hún hefur m.a. stýrt þátttöku Íslands í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi um 40 háskóla í CRANET samstarfsnetinu. Tilgangur þess er að standa fyrir reglubundnum rannsóknum á mannauðsstjórnun í öllum aðildarlöndunum til að auka þekkingu á þróun mannauðsstjórnunar í heiminum og gera samanburðarrannsóknir mögulegar.