Skip to main content

Alþjóðadagar - Þjónusta við flóttafólk á Íslandi

Alþjóðadagar - Þjónusta við flóttafólk á Íslandi  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. nóvember 2017 15:00 til 16:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

VHV-007

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kynnt verður skýrsla Alþjóðamálastofnunar, sem unnin var fyrir Innanríkisráðuneytið og Velferðarráðuneytið, þar sem þjónusta við flóttafólk er greind. 

Hvað finnst flóttafólki sem fengið hefur vernd hér á landi um þann stuðning og þjónustu sem það fékk þegar það kom til landsins? Hvaða áskoranir og möguleikar eru fyrir hendi að mati sérfræðinga sem vinna dagsdaglega við að aðstoða flóttafólk? Hvað getum við lært af því hvernig hin Norðurlöndin taka á móti flóttafólki? 

Auður Birna Stefánsdóttir, verkefnisstjóri hjá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, kynnir skýrsluna og tildrög hennar, auk þess að fara yfir niðurstöður úr eigindlegri rannsókn meðal sérfræðinga sem vinna við að taka á móti flóttafólki. 

Ásdís Arnalds, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun og doktorsnemi við Félagsráðgjafardeild, kynnir helstu niðurstöður úr skoðanakönnun og rýnihóparannsókn sem var gerð meðal flóttafólks á Íslandi. 

Kynningin fer fram í stofu VHV 007.

Allir velkomnir.