Auglýst eftir forstöðumanni við Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns, sem jafnframt er starf akademísks sérfræðings við Rannsóknasetur Háskóla Íslands Í Þingeyjarsveit.
Verið er að stofna Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit en setrinu er einkum ætlað að sinna rannsóknum á sviði umhverfishugvísinda. Aðsetur þess er í Gíg á Skútustöðum við Mývatn. Forstöðumaðurinn verður starfsmaður Háskóla Íslands og hefur starfsaðstöðu við setrið í Þingeyjarsveit og er gert ráð fyrir að forstöðumaðurinn gegni starfi sínu þaðan. Búseta á svæðinu er því skilyrði.
Innan Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands eru starfrækt 11 sjálfstæð rannsóknasetur víða um land. Markmið stofnunarinnar er m.a. að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni og vera vettvangur samstarfsverkefna háskólans við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni. Rannsóknir eru meginviðfangsefni rannsóknasetranna og eru viðfangsefnin fjölbreytt og tengjast nærumhverfi setranna með einhverjum hætti.
Rannsóknasetur HÍ í Þingeyjarsveit á í samstarfi við Svartárkot menningu – náttúru og saman standa þau að HULDU náttúruhugvísindasetri sem einnig verður staðsett á Skútustöðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Auk sjálfstæðra rannsókna hefur forstöðumaður umsjón með starfsemi setursins, fjármálum þess og daglegum rekstri. Hann skipuleggur rannsóknir og samstarfsverkefni, hefur með höndum áætlanagerð og stýrir sókn í sjóði. Hann þarf að geta tekið að sér leiðbeiningu háskólanema í framhaldsnámi og aðra kennslu á háskólastigi.
Gert er ráð fyrir því að sterk tengsl verði við rannsóknir og kennslu við deildir Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, sérstaklega vegna vettvangsnámskeiða á svæðinu. Lögð er rík áhersla á árangur í starfi, áhrif og gæði rannsókna og hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á sviði hugvísinda og skyldra greina og stundað sjálfstæðar rannsóknir á því sviði.
- Reynsla af rannsóknum á sviði umhverfishugvísinda er kostur.
- Reynsla af stjórnun verkefna og/eða stjórnun með mannaforráðum er kostur.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, lipurð í mannlegum samskiptum.
- Gott vald á íslensku og ensku.
- Reynsla af alþjóðasamstarfi sem og reynsla af þverfræðilegu samstarfi er æskileg.
- Reynsla af sókn í innlenda sem erlenda rannsóknasjóði er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið má finna á Starfatorgi þar sem einnig er sótt um starfið.
- Umsóknarfrestur er til og með 2. ágúst 2023.
Nánari upplýsingar veitir Sæunn Stefánsdóttir í síma 525 4041 og á saeunnst@hi.is.