Hádegisfundur: Sameining samþykkt! En hvað svo?
Háskólatorg
HT 101 (Ingjaldsstofa)
Félag stjórnmálafræðinga og Rannsóknasetur um sveitarstjórnarmál, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, standa fyrir hádegisfundi undir yfirskriftinni:
„Sameining samþykkt! En hvað svo? - Hvaða áskoranir eru við innleiðingu heimastjórna í sameinuðum sveitarfélögum?“.
Fundurinn fer fram þriðjudaginn 26. nóv kl. 12:00-13:00 í HT 101 (Ingjaldsstofa) í Háskóla Íslands. Streymt verður frá fundinum.
Róbert Ragnarsson ráðgjafi hjá RR ráðgjöf mun fara yfir hugmyndafræðina á bak við heimastjórnir í sameinuðum sveitarfélögum. Í framhaldinu mun Eva Marín Hlynsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild HÍ vera með erindið Staðbundið stjórnvald, þar verður farið yfir kosti og galla þess að valddreifa innan einstaka sveitarfélaga með þessum hætti. Einnig verður farið yfir dæmi frá öðrum löndum þar sem tilraunir í þessa átt hafa verið gerðar.
Fundarstjóri er Gunnar Helgi Kristinsson prófessor við stjórnmálafræðideild
Öll velkomin.
Smellið hér fyrir Facebook-viðburð hádegisfundarins
Félag stjórnmálafræðinga og Rannsóknasetur um sveitarstjórnarmál.
Eva Marín Hlynsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.