Skip to main content

„Ísland fyrir Íslendinga“: Áhrif fullveldis 1918 á efnahagslega þjóðernisstefnu

„Ísland fyrir Íslendinga“: Áhrif fullveldis 1918 á efnahagslega þjóðernisstefnu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. mars 2018 12:00 til 13:00
Hvar 

Þjóðminjasafn

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Guðmundur Jónsson prófessor fjallar um bókina Líftaug landsins í fyrirlestri sem fluttur verður í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 2. mars og hefst kl. 12:00. Hann mun fjalla sérstaklega um þá efnahagslegu þjóðernisstefnu sem bjó um sig hér á landi í kjölfar heimsstyrjaldarinnar fyrri.

Fram að heimsstyrjöldinni fyrri var Ísland opið land í efnahagslegu tilliti og í hópi þeirra Evrópulanda sem aðhylltust frjálsa verslun. Flytja mátti vörur, fjármagn og vinnuafl nánast óhindrað inn og út úr landinu. Eftir styrjöldina var annað hljóð komið í strokkinn því nú sótti verndarstefna á undir herópinu Ísland fyrir Íslendinga. Í erindinu ræðir Guðmundur Jónsson um ástæður þessarar kúvendingar í átt að efnahagslegri þjóðernisstefnu og hvaða þátt stofnun fullveldis 1918 átti í henni.

Guðmundur Jónsson er prófessor í sagnfræði og hefur rannskað fjölbreytileg viðfangsefni í stórnmála- og hagsögu nútímans. Nýverið kom út bókin Líftaug landsins. Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-2010 á vegum Sagnfræðistofnunar H.Í. sem Guðmundur og fimm aðrir sagnfræðingar hafa ritað. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2017. Guðmundur skrifar einn þátt bókarinnar, Smáþjóð á heimsmarkaði, sem fjallar um tímabilið 1914–2010 og styðst fyrirlesturinn við niðurstöður þeirrar rannsóknar.

Guðmundur Jónsson prófessor.

„Ísland fyrir Íslendinga“: Áhrif fullveldis 1918 á efnahagslega þjóðernisstefnu