Langtímamarkmið Háskóla Íslands Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og hefur jafnframt ríkum skyldum að gegna við íslenskt samfélag, menningu og tungu. Í háskólanum eru um 13.000 nemendur í grunn- og framhaldsnámi, þar af eru um 1.000 erlendir nemar. Háskólinn hefur heimild til að brautskrá doktora á öllum fræðasviðum sínum. Skólinn er í nánu samstarfi við marga af helstu rannsóknaháskólum og háskóladeildum heims. Rannsóknavirkni starfsmanna hefur vaxið hratt á undanförnum árum og sýna alþjóðlegir mælikvarðar að áhrif rannsókna þeirra hafa aukist verulega. Árið 2006 setti Háskóli Íslands sér það langtímamarkmið að komast í hóp hundrað fremstu háskóla í heimi. Önnur Norðurlönd eiga átta skóla í þessum hópi, en þeir eru Háskólinn í Kaupmannahöfn, Háskólinn í Árósum, Háskólinn í Osló, Karolinska Institutet í Stokkhólmi, Háskólinn í Uppsölum, Háskólinn í Lundi, Háskólinn í Stokkhólmi og Háskólinn í Helsinki. Auk þess eru á annan tug norrænna háskóla, sem eru svipaðir að stærð og uppbyggingu og Háskóli Íslands, á meðal fremstu háskóla heims. Árangur Háskóla Íslands á undanförnum árum sýnir að raunhæft er að stefna áfram að þessu langtímamarkmiði. Stefna Háskóla Íslands 2006-2011 Fyrsti áfangi á þessari vegferð var Stefna Háskóla Íslands 2006–2011. Meginmarkmið stefnunnar var að ná framúrskarandi árangri á sviði rannsókna, kennslu, stjórnunar og stoðþjónustu. Stefnan fól í sér ríflega eitt hundrað mælanleg og tímasett undirmarkmið sem lúta að öllum sviðum starfseminnar. Í framhaldinu settu allar deildir háskólans sér stefnu og markmið sem byggðust á heildarstefnunni. Meðal helstu markmiða Háskóla Íslands til ársins 2011 voru að: tvöfalda fjölda vísindagreina í virtustu alþjóðlegum ritrýndum tímaritum auka samstarf við erlenda háskóla og háskóladeildir í fremstu röð í heiminum auka sértekjur, m.a. úr innlendum og erlendum rannsóknasjóðum fimmfalda árlegan fjölda brautskráðra doktora efla gæðakerfi kennslu setja á stofn Miðstöð framhaldsnáms til að tryggja gæðakröfur í framhaldsnámi efla stoðþjónustu við rannsóknir og kennslu innleiða nýtt skipulag og stjórnkerfi til að auðvelda sókn að settum markmiðum. Stefna Háskóla Íslands 2011-2016 Annar áfangi að langtímamarkmiðinu er Stefna Háskóla Íslands 2011–2016. Í henni er lögð áhersla á að efla gæði og styrkja innviði allra þátta háskólastarfsins. Í því skyni setti skólinn sér markmið um rannsóknir og nýsköpun, nám og kennslu, mannauð og ábyrgð gagnvart samfélaginu og umheiminum. Helstu stef stefnunnar voru áhersla á gæðarannsóknir og alþjóðlegt samstarf, þróttmikið framhaldsnám sem uppfyllir alþjóðlegar gæðakröfur, samþættingu kennslu og rannsókna á öllum námsstigum, eflingu mannauðs og starfsánægju stúdenta og starfsmanna og samfélagslega og hnattræna ábyrgð á 21. öld. Háskóli Íslands komst í upphafi þessa tímabils í fyrsta sinn á lista Times Higher Education World University Rankings yfir 300 bestu háskóla heims. Þar hefur skólinn setið æ síðan og komst árið 2015 upp í 222. sæti listans. Stefna Háskóla Íslands 2016-2021 Háskóli Íslands samþykkti þriðju fimm ára stefnu sína árið 2016 og gildir hún til ársins 2021. Stefnan byggist á þeim árangri sem náðst hefur á undanförnum árum en jafnframt er sýn Háskólans sú að styrkja enn frekar stöðu sína sem háskóla í fremstu röð. Í hinni nýju stefnu, HÍ 21, eru tilgreindar fimm áherslur sem munu einkenna stefnu og starf skólans á stefnutímabilinu. Áherslurnar eru útfærðar nánar með markmiðum og aðgerðum sem beinast að kjarnastarfsemi Háskólans, rannsóknum, námi og kennslu og þátttöku í samfélagi og atvinnulífi, sem og mannauðinum sem starf skólans byggist á. Markmiðin og aðgerðirnar munu styrkja innviði, tryggja gæði og gera Háskólanum kleift að stuðla að þróun íslensks samfélags og sækja fram á alþjóðavettvangi. Aðgerðirnar verða rýndar og uppfærðar árlega og upplýsingar um framgang stefnunnar birtar á vef skólans. Stefna Háskóla Íslands 2021-2026 Fjórða fimm ára stefna byggir á þeim árangri sem náðst hefur hingað til. Stefnan ber yfirskriftina Betri háskóli - betra samfélag og nær til ársins 2026. Í HÍ 26, er lögð áhersla á opið og fjölbreytt umhverfi til náms og rannsókna. Einnig er sambandið við meginstoðir samfélagsins styrkt og samstarf við háskóla og þekkingarsetur um allan heim. HÍ 26 hefur sterka skírskotun til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og sett eru fram metnaðarfull markmið sem varða þróun kennslu, rannsókna, nýsköpun og aðra starfsemi. Leiðarljós eru gæði, traust og snerpa. Á vefnum stefna.hi.is má sjá nánari útfærslu áherslur í starfi skólans 2021-2026. Tengt efni Stefna HÍ 2021-2026 facebooklinkedintwitter