Strokkvartettinn Siggi á háskólatónleikum

Strokkvartettinn Siggi spilar verk eftir Beethoven og Atla Heimi Sveinsson á síðustu háskólatónleikum þessa vetrar sem fara fram miðvikudaginn 20. apríl kl. 12.30 í kapellu Aðalbyggingar Háskóla Íslands.
Kvartettinn skipa fiðluleikararnir Una Sveinbjarnardóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir, víóluleikarinn Þórunn Ósk Marínósdóttir og sellóleikarinn Sigurður Bjarki Gunnarsson. Þau eru öll félagar í Kammersveit Reykjavíkur og leika einnig með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Á efnisskrá Strokkvartettsins Sigga er strengjakvartett í f moll opus 95, Serioso, eftir Ludwig van Beethoven og Fimm smámunir fyrir strengjakvartett eftir Atla Heimi Sveinsson.
Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og allir eru velkomnir.
Strokkvartettinn Siggi var stofnaður árið 2012 og lék á sínum fyrstu tónleikum á UNM-hátíðinni í Reykjavík. Síðan þá hefur kvartettinn starfað reglulega og haldið tónleika víða um land. Á efnisskrá kvartettsins hafa auk annarra verið verk Haydns og Mozarts, Prokofievs, Shostakovich, Scelsis, Atla Heimis Sveinssonar, Hauks Tómassonar, Arvos Paert, Naomi Pinnock og Unu Sveinbjarnardóttur. Nýlega hóf kvartettinn að æfa verk Ludwig van Beethoven. Samhliða því verkefni leitast Siggi við að flytja nýja tónlist og gjarnan er íslensk tónlist 20. og 21. aldar á nótnapúltum.

