Samstarf við Skálholtsskóla endurnýjað

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslumála hjá Biskupsstofu, undirrituðu á dögunum samstarfssamning milli Háskólans og Skálholtsskóla. Samstarfið gefur kennurum og nemendum færi á að nýta aðstöðu í Skálholti til kennslu og rannsóknastarfa og ýmsum einingum skólans möguleika á að funda á þessu forna biskupssetri.
Samningurinn tekur við af eldri samningi frá árinu 1996 og kveður sá nýi m.a. á um að Háskóli Íslands og Skálholtsskóli vinni saman að fræðslu og rannsóknum og aukinni kynningu á þeirri menningu og sögu þjóðarinnar sem tengd er nafni Skálholts órjúfanlegum böndum. Það sé hægt að gera t.d. með ráðstefnum, fundum, námskeiðum og útgáfu. Í samningnum segir enn fremur að samstarfið geti m.a. falist í að Háskólinn styðji eftir atvikum kennara og doktorsnema til að nýta aðstöðu í Skálholti til kennslu eða rannsóknastarfa.
Þá hyggst Skálholtsskóli veita Háskóla Íslands aðstöðu til fundarhalda fyrir stjórnsýslu og til funda, námskeiða og ráðstefna fyrir fræðasvið, deildir og stofnanir Háskólans eftir því sem við verður komið.
Við þetta má bæta að Háskólinn og Skálholtsskóli hafa þegar komið upp sérstakri vinnuaðstöðu sem gerir fræðimönnum kleift að dvelja í Skálholti um lengri eða skemmri tíma. Skálholtsskóli annast bókanir á aðstöðunni.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslumála hjá Biskupsstofu, handssala hinn nýja samning.