Rýna í áhrif stafrænnar þróunar á stöðu eldra fólks á vinnumarkaði

Fulltrúar Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands taka þátt í umfangsmiklu alþjóðlegu rannsóknarverkefni, DIGI-net, sem beinist að áhrifum stafrænnar þróunar á ójöfnuð á vinnumarkaði meðal eldra starfsfólks.
Evrópskir vinnumarkaðir ganga nú í gegnum stafræna byltingu þar sem upplýsingatækni, vélmenni, gervigreind og sjálfvirknivæðing eru að umbreyta vinnuumhverfinu. Hins vegar er svæðisbundinn munur á því hve langt tæknivæðingin er komin í Evrópu. Á sama tíma eykst hlutfall starfsmanna 50 ára og eldri sem dvelja lengur á vinnumarkaði en áður og ekki er að fullu ljóst hvaða áhrif stafræn þróun hefur á þennan hóp.
Meginmarkmið DIGI-net, sem er stýrt frá Mendel University í Brno í Tékklandi, er að varpa ljósi á það með því að tengja saman fræðilegar rannsóknir og stefnumótun í því augnamiði að geta betur tekist á við ójöfnuð í vinnu sem skapast hafa vegna tæknivæðingar.
Að verkefninu standa yfir 400 fræðimenn frá 44 löndum víðs vegar að úr um heimum. Martina Rašticová, prófessor við við Mendel University í Brno, leiðir verkefnið og Petia Genkova, prófessor við Háskólann í Osnabrück, er annar leiðtogi þess. Sirrý Sif Sigurlaugardóttir, doktorsnemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, og Sigurveig H. Sigurðardóttir prófessor emerita í sömu grein, taka þátt í verkefninu hér á landi.
Fimm vinnuhópar með ólíkar áherslur skipta með sér verkum en hver um sig einbeitir sér að ákveðnum þáttum þess: stafrænni þróun og félagslegum ójöfnuði, menningu stofnana gagnvart aldri, heilsu eldra starfsfólks, stefnumótun og innleiðingu stefnu auk vinnu að miðlun verkefnisins og niðurstaðna þess á samfélagsmiðlum, til fjölmiðla og atvinnulífs. Jafnframt er innan verkefnisins hópur fyrir unga rannsakendur og ráðgjafahópur eldra starfsfólks.
Á vegum DIGI-net verkefnisins, sem er til fjögurra ára, verða haldnir að minnsta kosti þrír alþjóðlegir viðburðir á ári ásamt námskeiðum fyrir unga rannsakendur og stefnumótunar- og stjórnarfundum Auk þess styður verkefnið rannsóknardvöl fræðafólks í öðrum löndum í tengslum við verkefnið og veitir styrki til sjálfstæðra rannsókna og þátttöku í ráðstefnum. Afurðir verkefnisins eru meðal annars vísindagreinar, stefnumótandi ályktanir og tvær ritstýrðar bækur sem munu birtast í opnum aðgangi.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu verkefnisins.
Hluti aðstandenda verkefnisins hittist til skrafs og ráðagerða á dögunum.