Skip to main content
20. júní 2025

Rúmlega 9.000 umsóknir um grunn- og framhaldsnám við HÍ

Háskólatorg
  • Meðal annars fjölgun umsókna í lögfræði, hagfræði, næringarfræði, tungumálum og leikskólakennarafræði
  • Íslenska sem annað mál áfram með flestar umsóknir
  • Umsóknir um örnám yfir 600

Háskóla Íslands bárust nærri 5.100 umsóknir um grunnnám og tæplega 4.000 um framhaldsnám fyrir komandi skólaár. Samalagt eru þær því rúmlega 9.000. Af þeim eru yfir 600 umsóknir um nýja tegund háskólanáms á framhaldsstigi, örnám, sem ætlað er að mæta kröfum fólks í atvinnulífi sem vill bæta við sig þekkingu á afmörkuðu sviði.

Umsóknarfrestur vegna grunnnáms rann út þann 5. júní og um flestar námsleiðir í framhaldsnámi þann 15. apríl. Umsóknir um grunnnám í ár eru eilítið fleiri en í fyrra en þess skal getið að umsóknum á því námsstigi fjölgaði um tíu prósent í fyrra. Umsóknir um framhaldsnám eru hins vegar aðeins færri en í fyrra en á pari við árið 2023.

„Háskóli Íslands er með mesta og breiðasta námsframboð háskóla á Íslandi, námsframboð sem greinilega fellur framtíðarnemendum okkar vel. Í þessu sambandi er verulega ánægjulegt að sjá að hin mikla fjölgun umsókna í fyrra heldur sér í ár. Við hlökkum mikið til að taka við stórum hópi nýnema í haust,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

Nánari upplýsingar um dreifingu umsókna á deildir og námsleiðir í grunnnámi

Félagsvísindasviði barst 961 umsókn og líkt og oftast áður eru flestar umsóknir um viðskiptafræði eða 330. Umsóknir um nám við Lagadeild eru um 200 og fjölgar um rúmlega fjórðung milli ára. Þá eru umsóknir um nám í hagfræði nærri 130 og fjölgar um rúmlega þriðjung milli ára. Enn fremur stefna um 120 á nám í félagsráðgjöf og um 60 hyggja á nám í félagsfræði.

Á Heilbrigðisvísindasviði voru umsóknirnar nærri 1200 að þessu sinni. Þar er læknisfræði vinsælasta námsleiðin en ríflega 270 skráðu sig í inntökupróf sem fór fram dagana 5. og 6. júní. Sjötíu og fimm nemendur verða teknir inn í námið líkt og í fyrra. Umsækjendur um nám í sjúkraþjálfunarfræði voru rúmlega 90 en þar verða 40 teknir inn eftir yfirferð inntökuprófa. Það er sami fjöldi og tekinn er inn í tannlæknisfræði næsta haust en þar sóttu 55 um að þreyta inntökupróf. Umsóknir um nám í sálfræði reyndust nærri 260 og 180 sóttu um nám í hjúkrunarfræði. Auk þessu bárust um 60 umsóknir um nám í heilbrigðisgagnafræði, örlítið færri í lífeindafræði og tæplega 50 umsóknir í næringarfræði, sem er rúmlega 60% fjölgun milli ára. Þá hyggja um 40 á nám í lyfjafræði.

Hugvísindasviði bárust rúmlega 1.500 umsóknir sem er mesti fjöldi umsókna hjá einstöku sviði. Þar er nám í íslensku sem öðru máli og svokallaðri íslenskustoð langvinsælast en samanlagt eru umsóknir um það nám tæplega 800, ýmist í BA-nám eða styttra hagnýtt nám í greinunum. Þá fjölgar umsóknum um tungumálanám við Mála- og menningardeild skólans, þar sem læra má 14 mismunandi tungumál, um fjórðung milli ára og eru þær rúmlega 450. Þá stefna samanlagt rúmlega 70 á grunnnám í íslensku, almennri bókmenntafræði og almennum málvísindum, nærri 40 í sagnfræði og 30 í heimspeki.

Umsóknir á Menntavísindasviði reyndust rúmlega 830 og fjölgar um 7 prósent milli ára, en eins og kunnugt er flytur sviðið starfsemi sína í Sögu á nýju skólaári. Um 220 sækja um nám á námsleiðum sem tengjast grunnskólakennslu og tæplega 100 hyggja á nám í leikskólakennarafræði, sem er 38% fjölgun umsókna á milli ára. Þá ætla rúmlega 220 í alþjóðlegt nám í menntunarfræði og rúmlega 100 í nám í þroskaþjálfafræði. Umsóknir um námsleiðir í uppeldis- og menntunarfræði eru enn fremur nærri 70 og rúmlega 60 sækja um nám í íþrótta- og heilsufræði. 

Verkfræði- og náttúruvísindasviði bárust rúmlega 600 umsóknir. Í tölvunarfræði eru þær rúmlega 120 og næri 300 stefna á nám í einhverjum af námsleiðum skólans í verkfræði. Nærri 50 manns sækja um þrjár námsleiðir skólans á sviði stærðfræði og stærðfræðimenntunar, um 40 vilja hefja nám í líffræði, tæplega 30 í lífefna- og sameindalíffræði og um 25 í ferðamálafræði og landfræði.

Mikill áhugi á örnámi

Umsóknir um framhaldsnám við Háskóla Íslands, annað en doktorsnám, reyndust rúmlega 3.800. Nærri 1.400 þeirra bárust Félagsvísindasviði og um 850 Menntavísindasviði sem eru þau fræðasvið sem fá flestar umsóknir. Enn fremur bárust 455 umsóknir um námsleiðir innan þverfræðilegs framhaldsnáms við Háskóla Íslands, flestar í námsleiðir tengdar menntun framhaldsskólakennara eða tæplega 140. Nærri 90 umsóknir bárust um alþjóðlegt nám í umhverfis- og auðlindafræði og enn fremur 48 umsóknir um nám í iðnaðarlíftækni, 50% fleiri en í fyrra, en HÍ býður upp á þá námsleið í samstarfi við Alvotech sem er með höfuðstöðvar í landi Vísindagarða skólans. Litlu færri sækja um nám í lýðheilsuvísindum eða rúmlega 40.

Meðal umsókna um framhaldsnám eru tæplega 640 umsóknir um örnám í fjölbreyttum greinum við Háskóla Íslands, nýja og styttri tegund háskólanáms á framhaldsstigi sem Háskóli Íslands er að þróa og ætlað er að auðvelda fólki í atvinnulífi að bæta við sig þekkingu á afmörkuðu sviði. Örnámi lýkur ekki með prófgráðu heldur fá nemendur staðfest með vottorði að námi sé lokið. Örnámið er hins vegar metið til ECTS-eininga sem í mörgum tilvikum er hægt að nýta í öðru námi. 
Þessu til viðbótar hafa borist 134 umsóknir um doktorsnám á árinu.

Áhugi á Háskóla Íslands erlendis frá heldur áfram að aukast en umsóknir frá alþjóðlegum nemendum eru nærri 2.600. Tekið skal fram að skýr viðmið og sérstakt umsóknargjald er nýtt til þess að tryggja að einungis berist marktækar umsóknir um nám frá erlendum umsækjendum.

Háskóla Íslands bárust nærri 5.100 umsóknir um grunnnám og tæplega 4.000 um framhaldsnám fyrir komandi skólaár. Samalagt eru þær rúmlega 9.000. 

Háskóla Íslands bárust nærri 5.100 umsóknir um grunnnám og tæplega 4.000 um framhaldsnám fyrir komandi skólaár. Samalagt eru þær rúmlega 9.000. MYND/Kristinn Ingvarsson