Martin Ingi og Erna Sif hljóta Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs
Martin Ingi Sigurðsson, prófessor í svæfinga- og gjörgæslulækningum við Háskóla Íslands og yfirlæknir á sama sviði við Landspítala, og Erna Sif Arnardóttir, lektor við verkfræði- og tölvunarfræðideildir Háskólans í Reykjavík, tóku í dag við Hvatningarverðlaunum Vísinda- og tækniráðs úr hendi Katrínar Jakobsdóttur við hátíðlega athöfn á Rannsóknaþingi Rannís.
Martin Ingi Sigurðsson er fæddur árið 1982. Hann lauk kandidatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2009 en samhliða læknanámi lagði hann stund á doktorsnám í erfðafræði við Háskóla Íslands sem hann lauk með doktorsvörn árið 2011. Hann sérhæfði sig í svæfingalækningum við læknadeild Harvard háskóla og í kjölfarið lauk hann undirsérhæfingu í gjörgæslulækningum og svæfingum við hjarta- og lungnaskurðaðgerðir við Duke-háskóla í Norður-Karólínu. Hann tók við starfi prófessors við Háskóla Íslands árið 2019 samhliða stöðu yfirlæknis á svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala. Martin Ingi hefur verið mjög virkur í rannsóknum hérlendis og erlendis undanfarin 15 ár. Árið 2011 var hann valinn ungur vísindamaður Landspítala en auk þess hefur hann hlotið fjölda viðurkenninga m.a. fyrir framlag sitt á alþjóðlegum vísindaráðstefnum.
Martin Ingi Sigurðsson og Erna Sif Arnardóttir luku bæði doktorsprófi frá Háskóla Íslands á síðasta áratug og hafa hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín.
Erna Sif Arnardóttir er fædd árið 1981. Hún útskrifaðist með B.S. gráðu í sameindalíffræði frá Háskóla Íslands árið 2005, meistaragráðu í líf- og læknavísindum árið 2007 og varði doktorsverkefni sitt í líf- og læknavísindum frá Háskóla Íslands árið 2013. Doktorsverkefnið var að hluta unnið við University of Pennsylvania í Bandaríkjunum. Erna Sif hefur verið leiðandi vísindamaður á sviði svefnrannsókna hér á landi, m.a. sem nýdoktor og aðjúnkt við læknadeild Háskóla Íslands, sem forstöðunáttúrufræðingur við Svefndeild við Landspítala, sem klínískur ráðgjafi hjá fyrirtækinu Nox Medical og sem rannsóknasérfræðingur við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Árið 2020 setti hún á fót þverfaglegt Svefnrannsóknasetur við Háskólann í Reykjavík sem hún veitir forstöðu. Erna Sif leiðir jafnframt rannsókna- og þróunarverkefnið Svefnbyltingin en verkefnið hlaut tveggja og hálfs milljarða króna styrk frá rammaáætlun Evrópusambandsins á árinu 2020, en það er einn hæsti styrkur sem veittur hefur verið til vísindarannsókna hérlendis. Erna Sif hefur áður hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín á sviði svefnrannsókna. Hún var valin ungur vísindamaður Landspítala árið 2009 og hlaut hvatningarstyrk úr Vísindasjóði Landspítala árið 2011, auk viðurkenninga fyrir framlag sitt á alþjóðlegum vettvangi þar sem hún meðal annars hefur ítrekað haldið boðsfyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum.