Kennsluakademía opinberu háskólanna stofnuð – 11 fá inngöngu
Kennsluakademía opinberu háskólanna var stofnuð 1. nóvember um leið og fyrstu meðlimir hennar hlutu inngöngu. Akademían er sett á laggirnar með stuðningi og hvatningu frá mennta- og menningarmálaráðuneyti og aðild allra opinberu háskólanna, Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólans á Hólum.
Hlutverk Kennsluakademíu opinberu háskólanna er að efla samtal um kennslu og kennsluþróun innan og milli háskóla, styðja við öflugt náms- og kennslusamfélag og hvetja til kennsluþróunar.
Sæti í Kennsluakademíunni er viðurkenning sem hlotnast þeim kennurum sem hafa sinnt kennslu sinni og kennsluþróun af einstakri fagmennsku og fræðimennsku og eru reiðubúnir að deila reynslu sinni með samstarfsfólki sínu og fræðasamfélaginu. Fræðimennska náms og kennslu felst í því að beita fræðilegum vinnubrögðum, rannsóknum og ígrundun í kennslu og miðla þeirri reynslu á faglegum og fræðilegum vettvangi svo hún verði öðrum gagnleg. Með tilkomu Kennsluakademíu opinberu háskólanna á Íslandi skapast því nýr vettvangur faglegrar umræðu um kennslu og kennsluþróun.
Kennsluakademían er stofnuð að norrænni fyrirmynd og hefur verið litið til háskóla á borð við Háskólann í Lundi, Háskólann í Bergen, UiT í Noregi og Háskólannn í Helsinki og fleiri við þróun hennar. Kennsluakademían byggist enn fremur á alþjóðlegri áherslu á fræðimennsku í kennslu (e. Scholarship of teaching and learning - SoTL).
Strangt umsóknarferli fyrir inngöngu
Samhliða formlegri stofnun Kennsluakademíunnar 1. nóvember voru fyrstu kennararnir teknir inn í hana eftir strangt umsóknarferli sem fólst m.a. í vinnustofum með erlendum sérfræðingum og örnámskeiðum. Fjögur viðmið voru höfð til hliðsjónar við inntöku:
- Nemendamiðuð kennsla
- Fagþekking – færni til þess að setja fagþekkingu fram í samhengi náms og kennslu
- Skýr kennsluþróun til framtíðar – fagmennska í kennslu
- Virk þátttaka í samtali um nám og kennslu
Alþjóðleg matsnefnd, skipuð þremur erlendum sérfræðingum og einum innlendum, lagði mat á umsóknirnar og boðaði umsækjendur eftir atvikum til viðtals. Nefndina skipuðu Thomas Olsson, dósent og sérfræðingur í kennsluþróun við Háskólann í Lundi, Guðrún Geirsdóttir, dósent og deildarstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, Oddfrid Terese Kårstad Førland, ráðgjafi og sérfræðingur í kennsluþróun við Háskólann í Bergen, og Petter Holm, prófessor og deildarstjóri kennslusviðs UiT – The Arctic University of Norway.
Matsnefndin byggði niðurstöður sínar á umsóknum, kennsluferilskrá, ferilskrá, bréfi frá deildarforseta og viðtölum eftir atvikum. Alls bárust 20 umsóknir og af þeim voru 11 talin hafa uppfyllt þau viðmið sem lögð eru til grundvallar inngöngu í Kennsluakademíuna. Þau eru:
Anna Helga Jónsdóttir | Dósent við Raunvísindadeild Háskóla Íslands |
Ásdís Helgadóttir | Dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands |
Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson | Lektor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands |
Eva Marín Hlynsdóttir | Prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands |
Hjálmtýr Hafsteinsson | Dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands |
Jessica Faustini Aquino | Lektor við Háskólann á Hólum |
Margrét Sigrún Sigurðardóttir | Dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands |
Matthew James Whelpton | Prófessor við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands |
Sean Michael Scully | Aðjúnkt við Háskólann á Akureyri |
Thamar Melanie Heijstra | Prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands |
Tómas Philip Rúnarsson | Prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands |
Hópurinn mun á næstu vikum sitja stofnfund þar sem stjórn verður skipuð og verkefni Kennsluakademíunnar ákveðin. Starfsemi akademíunnar verður áfram í mótun þótt markmiðin séu ljós, að efla samtal um kennslu og kennsluþróun innan og milli háskóla, styðja við öflugt náms- og kennslusamfélag og hvetja til kennsluþróunar.
Áætlað er að opnað verði fyrir umsóknir í Kennsluakademíuna að nýju næsta vor.
Fleiri myndir myndir frá stofnun Kennsluakademíu opinberu háskólanna