Skip to main content

Sýning í Borgarbókasafninu: kvíðamenning - óviss framtíð

Sýning í Borgarbókasafninu: kvíðamenning - óviss framtíð - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. apríl 2025 16:00 til 17:00
Hvar 

Borgarbókasafnið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Opnunarviðburður:

Hvaða afleiðingar hefur það að leggja stöðugt áherslu á framfarir? Aukin hamingja er ekki tryggð með því sem telst til framfara. Gildin sem liggja að baki kapítalisma eru einstaklingshyggja, neysla, sveigjanleiki, framleiðsla og hraði sem auka á vanlíðan. Þessir þættir ýta undir hagsveiflur, félagslegan ójöfnuð og eru órjúfanlegir þættir nýfrjálshyggjunnar sem eru orsök tilfinningalegs ójafnvægis, óvissu og framtíðarkvíða.

Við vörpum ljósi á ólíka þætti kvíðamenningar á sýningunni „Kvíðamenning - óviss framtíð“. Sýningin er gagnvirk og hvetjum við öll að koma, upplifa og setja sitt mark á sýninguna sem nemendur í námskeiðinu „Listir sem aðferð mannfræðinnar“ í HÍ settu upp.

Ókeypis aðgangur, öll velkomin!

Frekari upplýsingar veitir Anna Wojtynska - annawo@hi.is

Við vörpum ljósi á ólíka þætti kvíðamenningar á sýningunni „Kvíðamenning - óviss framtíð“. Sýningin er gagnvirk og hvetjum við öll að koma, upplifa og setja sitt mark á sýninguna.

Sýning í Borgarbókasafninu: kvíðamenning - óviss framtíð