Pólsk-íslenska samvinnuverkefnið Reyvarstígur – upplýsingafundur

Hvenær
6. maí 2025 13:00 til 14:00
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Heimasvæði tungumála, 2. hæð
Nánar
Aðgangur ókeypis
Þriðjudaginn 6. maí kl. 13:00 – 14:00 verður upplýsingafundur á Heimasvæði tungumála í Veröld (2. hæð) um pólsk-íslenska samvinnuverkefnið Reyvarstígur.
Mariola Alicja Fiema, aðjunkt í pólskum fræðum og Eyjólfur Már Sigurðsson, forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar HÍ munu kynna verkefnið fyrir áhugasömum nemendum. Frestur til að sækja um þátttöku í verkefninu rennur út 16. maí.
Verkefnið er styrkt af NAWA (The National Agency for Academic Exchange) í Póllandi.
