Skip to main content

Örkynning - Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað

Örkynning - Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. maí 2025 10:30 til 10:45
Hvar 

Á netinu

Nánar 
Á netinu

Hefur þú áhuga á sköpun og sjálfbærni? Langar þig í verklegt og skapandi nám í einstakri náttúru?

Kíktu á örkynningu um Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað - framtíðarmenntun sem snertir huga, hönd og hjarta. Námið er 60 ECTS grunndiplóma eða aukagrein við HÍ sem opnar möguleika á að tengja sjálfbærni og skapandi vinnu við sitt fag- og áhugasvið.

Á kynningunni færðu innsýn í:
✅ Hvernig námið er uppbyggt og hvaða námskeið eru í boði
✅ Aðstöðuna á Hallormsstað
✅ Tækifæri til að spyrja spurninga

Kynningin fer fram á netinu á Zoom og er öllum opin. Hægt að skrá sig með því að smella á „mæta“ á viðburðinn á Facebook.

Umsóknarfrestur Háskóla Íslands í nám í Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað er til og með 5. júní 2025.

Í hjarta Hallormsstaðaskógar sameinast náttúra, handverk og fræðileg þekking í námi í Skapandi sjálfbærni.

Örkynning - Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað