Skip to main content

FRESTAÐ VEGNA VEÐURS - SAR ráðstefna – Truth Matters

SAR ráðstefna – Truth Matters - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. mars 2026 12:00 til 13:15
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

VIÐBURÐINUM HEFUR VERIÐ FRESTAÐ VEGNA VEÐURS - NÝ DAGSETNING TILKYNNT VIÐ FYRSTA TÆKIFÆRI

Háskóli Íslands er aðili að alþjóðlegu samtökunum Scholars at Risk (SAR) sem hafa það að markmiði að styðja við akademískt frelsi og vernda fræðifólk á flótta vegna skoðana sinna. Í tilefni af 25 ára afmæli SAR halda samtökin viðburði víða um heim í samstarfi við akademískar stofnanir. Yfirskriftin er Truth Matters, og tekur Háskóli Íslands þátt með ráðstefnu þar sem markmið Scholars at Risk verða rædd.Fjallað verður um stöðu háskóla og fræðifólks og þá ógn sem víða steðjar að akademísku frelsi og sjálfstæði háskóla. Verður þessi aðför sett í samhengi við aðförina að grundvallarmannréttindum, aukna valdbeitingu hins opinbera og upplýsingaóreiðu en þessi atriði fylgja gjarnan árásum á sjálfstæði háskóla.

Hátíðarsalur og í streymi.

Opnun
• Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands
Fundarstjórn
• Artem Ingmar Benediktsson, doktor í menntavísindum
Erindi
• Hulda Þórisdóttir, prófessor við HÍ
• Valgerður Pálmadóttir, lektor við HA
• Hafsteinn Einarssson, dósent við HÍUmræður og spurningar úr sal

Erindi
1. Stutt við fræðafólk í erfiðri stöðu, dæmisaga og hvatning - Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

2. Mannréttindi og akademískt frelsi: Saga, pólitískt samhengi og mikilvægi dómgreindar - Valgerður Pálmadóttir, lektor í kennaradeild við Háskólann á Akureyri.

3. Þegar bullið ræður för: Gervigreind, sannleikurinn og hlutverk háskóla á tímum upplýsingaóreiðu - Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands.

Viðburðinum verður einnig streymt.

Artëm Ingmar Benediktsson starfar sem dönskukennari við Garðaskóla og verkefnastjóri við inngildingarverkefni opinberra háskóla. Árið 2020 lauk hann doktorsnámi í menntavísindum frá Háskóla Íslands. Rannsóknir hans beinast að fjölmenningarlegri menntun, gagnrýninni fjölmenningarfræði, fjöltyngi, tungumálastefnu og menningarmiðuðum kennsluaðferðum á öllum skólastigum í Danmörku, Noregi og á Íslandi.

Hulda Þórisdóttir er með doktorspróf í félagslegri sálfræði frá New York University. Rannsóknir hennar eru á sviði stjórnmálasálfræði, s.s. hvers vegna fólk laðast að tiltekinni hugmyndafræði, trú á samsæriskenningar og önnur stjórnmálatengd viðhorf.

Valgerður Pálmadóttir lauk doktorsprófi í hugmyndasögu frá Umeåháskóla í Svíþjóð 2018. Valgerður hefur meðal annars rannsakað hugmyndir og baráttuaðferðir félagshreyfinga í sögulegu ljósi, þar með talið hugmyndasögu og heimspeki mannréttinda, femínisma og friðar.

Hafsteinn Einarsson lauk doktorsprófi í greininni frá ETH í Zürich og beinast rannsóknir hans að máltækni og gervigreind. Hafsteinn hefur meðal annars rannsakað bjaga í gervigreind, frammistöðu hennar á íslensku og hvernig hægt er að beita henni til að greina hatursorðræðu á netinu. Hann er jafnframt þátttakandi í Evrópuverkefninu TrustLLM, sem miðar að þróun mállíkana fyrir germönsk tungumál.

Gott aðgengi. P-stæði, rampur, rafmagnsopnun og lyfta. Lágur þröskuldur við inngang. Færanleg borð og stólar, ekki halli á sal. Gluggar í suður og norður. Upphækkað svið, en frá gólfi upp á svið er sérútbúin lyfta sem rúmar flesta hjólastóla. Aðgengileg salerni á 1. og 2. hæð, ókyngreint salerni í kjallara.