Skip to main content

Doktorspróf... hvað svo?

Doktorspróf... hvað svo? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. apríl 2025 13:30 til 15:00
Hvar 

Háskólatorg

HT-101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrsta erindið í mögulegri fyrirlestraröð um lífið eftir doktorspróf í þeim fræðigreinum sem stundaðar eru á Félagsvísindasviði, Hugvísindasviði og Menntavísindasviði.

Í erindunum verður glímt við spurningar eins og: Hverjar eru væntingar doktorsnema og nýdoktora til stöðuveitinga í íslenskum háskólum? Hvernig metur vinnumarkaðurinn utan háskólanna gildi doktorsmenntunar í þessum fræðigreinum? Hvaða möguleikar eru á rannsóknartengdri vinnu eftir doktorspróf í þessum greinum?

Dagskrá:

  1. Thamar Heijstra og Gyða Margrét: Framúrskarandi doktorsprófshafar í ótryggri stöðu
  2. Arndís Bergsdóttir: Kynning á Reykjavíkurakademíunni