Alþjóðlega ráðstefnan „Hnattrænn súrrealismi“

Alþjóðlega ráðstefnan „Hnattrænn súrrealismi“ fer fram dagana 6.–7. júní 2025 við Háskóla Íslands. Málþingið er haldið á vegum Bókmennta- og listfræðastofnunar. Aðalerindi ráðstefnunnar flytja Abigail Susik, dósent við háskólann í Willamette, og Kristoffer Noheden, rannsakandi við Stokkhólmsháskóla.
Málþingið beinir sjónum að súrrealisma sem hnattrænu fyrirbrigði, með áherslu á alþjóðlega og þvermenningarlega fleti hreyfingarinnar. Tekið verður á ólíkum þáttum, allt frá rannsóknum á hlutverki súrrealisma á ólíkum menningarsvæðum og greiningu á súrrealískum aðferðum og byltingaraðgerðum til kortlagningar á tengslanetum súrrealismans og alþjóðlegri samvinnu.
Málstofur ráðstefnunnar verða haldnar í Veröld (VHV-023) og á Háskólatorgi (HT-101).
Málþingið er styrkt af RANNÍS, Ráðstefnusjóði Hugvísindastofnunar HÍ og Sjóði Rektors.
Aðgangur er ókeypis en óskað er eftir skráningu á netfangið globalsurrealism2025@gmail.com
Nánari upplýsinagar má finna á vefsíðu ráðstefnunnar.
Alþjóðlega ráðstefnan „Hnattrænn súrrealismi“ fer fram dagana 6.–7. júní 2025 við Háskóla Íslands.
