Aðalfundur Vísindafélags Íslands

Edda
Stofa 218
Aðalfundur Vísindafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 22. maí kl. 15-17 í stofu 218 í Eddu, húsnæði Háskóla Íslands, Arngrímsgötu 5, 107 Reykjavík. Í upphafi mun Magnús Karl Magnússon, prófessor, flytja erindið: Fjármögnun og uppbygging vísindastarfs á Íslandi.
Dagskrá:
Erindi Magnúsar Karls Magnússonar undir heitinu: Fjármögnun og uppbygging vísindastarfs á Íslandi
Aðalfundarstörf:
1. Kosning fundarstjóra og ritara
2. Skýrsla stjórnar: Yfirlit yfir starfsemi félagsins á sl. ári
3. Ársreikningur
4. Kosning stjórnarmanna
5. Ákvörðun um félagsgjald
6. Umræða um tilgang félagsins og mögulega endurskoðun laga félagsins
7. Önnur mál
Aðalfundur Vísindafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 22. maí kl. 15-17 í stofu 218 í Eddu, húsnæði Háskóla Íslands, Arngrímsgötu 5, 107 Reykjavík.
