Skip to main content

Hreyfafl skapandi og skáldlegra framtíðarsýna

Hreyfafl skapandi og skáldlegra framtíðarsýna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. maí 2025 8:30 til 10:00
Hvar 

Gróska

Höfuðstöðvar CCP

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 8. maí klukkan 8:30-10 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Hreyfiafl skapandi og skáldlegra framtíðarsýna.

Erindum verður streymt.

Í samtali um hreyfiafl skapandi og skáldlegra framtíða er markmiðið að rýna í hvernig samfélagið sér fyrir sér framtíðina. Á meðan framtíðin er óræð, þá er mikið lagt upp úr að spá fyrir um framtíðina, skipuleggja og sjá fyrir mögulegar áskoranir. Hvaða aðferðum er beitt til þess að takast á við óvissuna? Ímyndunaraflið spilar lykilhlutverk í framtíðarsýn einstaklinga, hópa og samfélagsins í heild, en tilhneiging virðist vera að smætta möguleika framtíðarinnar niður í hið kunnuglega og það sem talið er öruggast. Þörfin fyrir umbreytingar er ákallandi á tímum loftslagsógnar, stríðsbrölts og bakslags á mörgum sviðum félagslegs réttlætis og því er mikilvægt að takast á við þessa krísu ímyndunaraflsins.

Bergsveinn Þórsson er dósent við Háskólann á Bifröst og fagstjóri opinberrar stjórnsýslu. Í rannsóknum sínum hefur hann rýnt í innleiðingu sjálfbærni og loftslagsaðgerða menningarstofnana og hvernig menningargeirinn geti lagt sitt af mörkum til samfélagslegra breytinga og fjölbreyttra framtíðarsýna. Í erindi sínu mun hann kynna sýninguna Beyond Barcode sem hann vann að í samstarfi við rannsóknarverkefnið CoFutures: Pathways to possible presents við Oslóarháskóla og Interkulturelt Museum í Osló. Sýningin varpaði fram sjö skáldlegum sviðsmyndum um mögulegar framtíðir borgarinnar unnar með ungu fólki úr nærsamfélagi safnsins.

Dögg Sigmarsdóttir er verkefnastjóri sem lokið hefur APME í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Hún er með meistaragráðu í Political and Economic Philosophy frá Universität Bern (Sviss) og hefur einnig lokið diplómanámi í alþjóða- og evrópurétti frá sama háskóla. Á Borgarbókasafninu hefur hún verið í starfi verkefnastjóra borgaralegrar þátttöku. Hún hefur einnig stýrt fjölmörgum verkefnum innan frjálsra félagasamtaka sem snúa að stefnumótun, nýsköpun og fræðslu á sviði mannréttinda, lýðræðisþátttöku, sjálfbærni og inngildingar. Í erindi sínu ræðir Dögg aðferðafræði samsköpunar og hvernig hægt sé að móta samfélagsrými sem stuðla að framtíðarvon, sjálfbærni og velsæld.

Þorgerður Ólafsdóttir útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá Glasgow School of Art árið 2013 og lauk BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2009. Í verkum sínum skoðar hún breytingar sem staðir ganga í gegnum, hvort sem þær ná utan um eitt andartak, eina mannsævi eða eru á jarðsögulegum skala. Hún hefur áhuga á fyrirbærum og hlutum sem vekja upp undrun og dýpka samband okkar við náttúruna, í veröld sem tekur stöðugum breytingum. Þorgerður er þátttakandi í tveimur rannsóknarverkefnum; Relics of Nature, an Archaeology of Natural Heritage in the High North, á vegum Háskólans í Osló og Extremes, sem hýst er af Háskóla norðurslóða í Tromsö og er í samstarfi við Huldu, náttúruhugvísindasetur á Norðurlandi. Í erindi sínu mun Þorgerður segja frá listrannsókn sinni og sýningarverkefni Brot úr framtíð. Fyrsti hluti þessa verkefnis opnaði í Bogasal Þjóðminjasafnsins á Listahátíð í Reykjavík síðasta sumar og lauk með málþinginu Samtal um hamfarir í nóvember 2024.
Í kjölfar erinda lýkur streyminu og opnað verður fyrir umræður meðal fundargesta.

CCP býður fundargestum upp á kaffi og léttan morgunverð.
Athugið að sætaframboð er takmarkað.

Skráningu lýkur kl. 12 miðvikudaginn 7. maí.

Vinsamlegast skráið mætingu (á staðinn) hér. 

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 8. maí klukkan 8:30-10 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Hreyfiafl skapandi og skáldlegra framtíðarsýna.

Hreyfafl skapandi og skáldlegra framtíðarsýna