Skip to main content

Leiðsögn og opnun sýningarinnar Skrúði Vigdísar

Leiðsögn og opnun sýningarinnar Skrúði Vigdísar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. apríl 2025 13:00 til 17:00
Hvar 

Loftskeytastöðin

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þann 15. apríl fagnar Loftskeytastöðin 95 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur og býður þjóðinni á leiðsögn um sýninguna Ljáðu mér vængi: Ævi og áhrif Vigdísar Finnbogadóttur kl. 14.
Á afmælisdeginum verður sýningin Skrúði Vigdísar einnig opnuð á neðri hæð hússins en hún hefur að geyma hátíðarklæðnað forsetans fyrrverandi. Frír aðgangur er að sýningunum dagana 15.-17. apríl.

Áhrif Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, á íslenskt samfélag og staða hennar í alþjóðlegu samhengi er meginþema sýningarinnar Ljáðu mér vængi.

Á sýningunni er lögð áhersla á að varpa ljósi á það umhverfi sem Vigdís Finnbogadóttir er sprottin úr en einnig á störf hennar sem forseti, ævi hennar og áhrif. Meðal annars er fjallað um framlag Vigdísar til náttúruverndar, mannréttindamála, lista og jafnréttismála ásamt framlagi hennar til tungumála, bæði hér á landi og á heimsvísu.

Verið öll hjartanlega velkomin.

Þann 15. apríl fagnar Loftskeytastöðin 95 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur og býður þjóðinni á leiðsögn um sýninguna Ljáðu mér vængi: Ævi og áhrif Vigdísar Finnbogadóttur kl. 14.Á afmælisdeginum verður sýningin Skrúði Vigdísar einnig opnuð á neðri hæð hússins en hún hefur að geyma hátíðarklæðnað forsetans fyrrverandi. Frír aðgangur er að sýningunum dagana 15.-17. apríl.

Leiðsögn og opnun sýningarinnar Skrúði Vigdísar