Stóra LEGO - keppnin 2024
Hvenær
16. nóvember 2024 9:00 til 16:00
Hvar
Háskólabíó við Hagatorg
Nánar
Aðgangur ókeypis
LEGOkeppni grunnskólanna, First Lego League Ísland, fer fram í Háskólabíói laugardaginn 16. nóvember. 27 lið úr grunnskólum landsins keppa!
Vísindasmiðja Háskóla Íslands verður einnig með opið hús! Fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna!
Þema keppninnar í ár er "Neðansjávar" (e. Submerged) þar sem FIRST LEGO League liðin kanna hafsbotninn og afhjúpa lög og vistkerfi hafsins með skapandi hugsun og LEGO tækni. Þátttakendur munu rannsaka undirdjúpin og koma uppgötvunum sínum á yfirborðið með áherslu á raunveruleg vandamál tengd heilsu og sjálfbærni hafsins.
Keppninni verður einnig streymt á heimasíðunni firstlego.is
Öll hjartanlega velkomin að fylgast með keppninni!