Móeiður Júníusdóttir, M.Ed. frá Uppeldis- og menntunarfræðideild
Í ritgerðinni beini ég sjónum að forsendum, mikilvægi og hlutverki trúarbragðafræðslu grunnskólans í íslensku samfélagi sem hefur þróast hratt í átt til fjölmenningar á síðustu árum. Þá greini ég frá niðurstöðum eigindlegrar viðtalsrannsóknar þar sem tekin voru viðtöl við sjö einstaklinga með ólíkan trúarlegan og menningarlegan bakgrunn sem eiga það sameiginlegt að vera foreldrar íslenskra grunnskólabarna. Tilgangur og markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í viðhorf foreldra til trúaruppeldis og trúarbragðafræðslu á tímum margbreytileika,“ segir Móeiður Júníusdóttir um ritgerð sína Hlutverk trúarbragðafræðslu í íslensku fjölmenningarsamfélagi: Viðhorf foreldra grunnskólabarna. Ritgerðin var lokaverkefni hennar til meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði.
Móeiður Júníusdóttir
„Tilgangur og markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í viðhorf foreldra til trúaruppeldis og trúarbragðafræðslu á tímum margbreytileika.“

Móeiður segir að kveikjan að þessu verkefni hafi verið miklar breytingar í samfélaginu. Hún segir að aukin fjölbreytni þjóðarinnar komi skýrt fram í grunnskólum landsins þar sem saman komi nemendur með ólíkan menningarlegan og trúarlegan bakgrunn. Í umræðunni um þessar breytingar segir hún kastljósið að mestu hafa beinst að hinum tungumálalega þætti. „Þó má færa veigamikil rök fyrir því að einnig þurfi að huga að þeim trúarlega. Í því sambandi er gagnlegt að horfa til þeirrar umræðu sem á sér stað í Evrópu á þessu sviði. Þar beinist athygli fræðimanna í sívaxandi mæli að gildi og hlutverki trúarbragðafræðslu í fjölmenningarlegum aðstæðum,“ segir Móeiður og bendir á að allir nemendur eigi að hafa jöfn tækifæri til menntunar. Gildir þá einu hver félagsleg staða, kyn, uppruni, trúarbrögð eða tungumál þeirra eru.
Niðurstöður Móeiðar benda til að trúarbrögð gegni margvíslegu hlutverki í lífi þeirra foreldra sem hún tók viðtöl við. Þá töldu foreldrarnir trúarbragða- fræðslu skólans mikilvæga í almennri menntun barnanna og að kennslan ætti að vera hlutlaus, nemendamiðuð og í anda fjölhyggju. Þannig ætti hún ekki aðeins að snúast um fjölmennustu trúarbrögðin. „Foreldrarnir telja mikilvægt að börn þeirra öðlist grunnþekkingu á trúarbrögðunum, fái sem skýrasta mynd af fjölbreytileikanum og geti myndað sér skoðanir á þeim grundvelli,“ sagði Móeiður að lokum.
Leiðbeinandi: Gunnar J. Gunnarsson, dósent við Kennaradeild.