Skip to main content

Vald fjármagnsins, traust almennings og hnignun lýðræðis

Vald fjármagnsins, traust almennings og hnignun lýðræðis - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. júní 2025 11:00 til 12:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Anat Admati, prófessor í fjármálum við Stanford Graduate School of Business í Bandaríkjunum, flytur erindi í Hátíðasal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu miðvikudaginn 18. júní kl. 11-12. Yfirskrift erindisins, sem er á vegum Háskóla Íslands og Háskólans á Bifröst, er „Vald fjármagnsins, traust almennings og hnignun lýðræðis“.

Um erindið

Fjármálastofnanir gegna miklu en jafnframt lítt rannsökuðu hlutverki í hnignun lýðræðislegra stjórnarhátta og ábyrgðarskyldu (e. accountability) í samfélaginu. Með hliðsjón af kenningum stjórnmálahagfræðinnar og þróun mála á alþjóðavettvangi mun Anat Admati fjalla um hvernig brenglaðir hvatar og veikburða eftirlitskerfi hafa gert lykilaðilum í fjármálaheiminum kleift að grafa undan réttarríkinu, ýta undir vantraust meðal almennings og auka bresti í stefnumótun á hinu pólitíska sviði. Í erindinu mun Admati einnig fjalla um hvernig fræðasamfélagið og fagfólk almennt getur brugðist við þessum öflum og spornað gegn hnignun lýðræðis.

Opnunarávarp flytur Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Guðrún Johnsen, deildarforseti Viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, kynnir Anat og störf hennar.

Fundarstjóri er Sigríður Benediktsdóttir, dósent við Columbia-háskóla og lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Veitingar verða í boði að fyrirlestri loknum.

Erindið er öllum opið en gestir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig til þess að hægt sé að áætla veitingar.

Um Admati

Anat R. Admati hefur varið starfsævinni í rannsóknir á sviði fjármála fyritækja og beinast rannsóknir, kennsla og málsvarastarf hennar nú að flóknu samspili viðskiptalífs, laga og opinberrar stefnumótunar með sérstaka áherslu á stjórnarhætti og ábyrgðarskyldu. Hún er ásamt Martin Hellwig höfundur verðlaunabókinnar The Bankers’ New Clothes: What’s Wrong with Banking and What to Do about It (Princeton University Press, 2013; endurútgefin með viðbótum 2024). Árið 2014 var Admati valin á lista tímaritsins Time yfir 100 áhrifamestu einstaklinga heims og hún var einnig á lista Foreign Policy Magazine yfir 100 fremstu hugsuði heims.

Admati gegnir stöðu George G.C. Parker prófessors í fjármálum og hagfræði við Stanford Graduate School of Business. Þar er hún einnig einn af stjórnendum Corporations and Society Initiative (CASI) og Program on Capitalism and Democracy (CAD) við Freeman Spogli Institute for International Studies (FSI). Þá á hún sæti í ráðgjafarnefnd um kerfislega mikilvægar fjármálastofnanir innan Innistæðutryggingarsjóðs Bandaríkjanna (Federal Deposit Insurance Corporation (FDIC)).

Anat Admati, prófessor í fjármálum við Stanford Graduate School of Business í Bandaríkjunum, flytur erindi í Hátíðasal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu miðvikudaginn 18. júní kl. 11-12. Yfirskrift erindisins, sem er á vegum Háskóla Íslands og Háskólans á Bifröst, er „Vald fjármagnsins, traust almennings og hnignun lýðræðis“.

Vald fjármagnsins, traust almennings og hnignun lýðræðis