Skip to main content

Þolinmæði eða skammtímabrask? Hverjir leiða hjarðhegðun á mörkuðum?

Þolinmæði eða skammtímabrask? Hverjir leiða hjarðhegðun á mörkuðum? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. apríl 2026 12:00 til 13:30
Hvar 

Þjóðminjasafnið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Margar rannsóknir hafa sýnt fram á skýran mun á hegðun fag- og einstaklingsfjárfesta á fjármálamörkuðum. Fagfjárfestar eru almennt taldir stunda upplýstari viðskipti og taka síður þátt í eignabólum. Í þessari rannsókn skoðum við viðskipti með íslensk hlutabréf á árunum 2020-2024 og metum hversu líklegir ólíkir fjárfestahópar eru til að sýna hjarðhegðun. Niðurstöður okkar benda til þess að hjarðhegðun á kauphlið markaðarins sé að mestu leyti drifin áfram af einstaklingsfjárfestum, á meðan fagfjárfestar eru líklegri til að synda gegn straumnum. Á söluhliðinni eru það þó fyrst og fremst fagfjárfestar sem knýja áfram hjarðhegðun. Þessar niðurstöður benda til þess að það sé ekki tegund fjárfesta ein og sér sem ræður því hvort þeir sýni hjarðhegðun, heldur skipti fjárfestingarstefna og vægi grundvallargreiningar í henni meira máli.

Jón Guðjónsson segir frá rannsókn sinni á hjarðhegðun fjárfesta á hlutabréfamarkaði árin 2020-2024. Rannsóknin miðar að því að kanna hvort lífeyrissjóðir magni eða minnki sveiflur á hlutabréfamarkaði.

Þolinmæði eða skammtímabrask? Hverjir leiða hjarðhegðun á mörkuðum?