Þjóðaratkvæðagreiðslur - já eða nei

Oddi
Stofa 101
Eru þjóðaratkvæðagreiðslur lýðræðislegra form ákvarðanatöku en fulltrúaþing? Hvaða reglur eiga að gilda um þátttökuhlutfall? Dugar hreinn meirihluti til samþykkis eða er betra að hafa aukinn meirihluta? Hvernig tryggjum við jafnt aðgengi að kjörstöðum í þjóðaratkvæðagreiðslum? Hvaða lönd nota þjóðaratvæðagreiðslur mest og getum við lært eitthvað af þeim? Hvernig hefur Ísland notað þjóðaratkvæðagreiðslur hingað til og hvað getum við lært af reynslunni?
Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands standa fyrir pallborðsumræðum í Háskóla Íslands um kosti og galla þjóðaratkvæðagreiðslna í lýðræðissamfélögum.
Í pallborði verða:
Emma Björg Eyjólfsdóttir, doktorsnemi í stjórnmálaheimspeki
Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði
Fundarstjóri er Svanhildur Þorvaldsdóttir
Fundurinn fer fram á íslensku og er öllum opinn!
🗓️ Fimmtudagur, 16. apríl, 2026
🕦 12:00-13:00
📍 Oddi 101, Háskóli Íslands
Opinn hádegisfundur um þjóðaratkvæðagreiðslur, á vegum Félags stjórnmálafræðinga og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála
