Sýningaropnun: Leiðarlag

Opnun sýningarinnar Leiðarlag í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, föstudaginn 20. mars kl. 17:00-19:00. Sýningin er samsýning fyrsta árs meistaranema í myndlist við Listaháskóla Íslands og sýningarstjórar eru meistaranemar í sýningargerð, miðlun og sýningarstjórnun við Háskóla Íslands.
Sýningin verður opin 21., 22., 28. og 29. mars kl. 13:00-17:00.
- Listasafnið stendur á Laugarnestanga, svæði sem býr yfir ríkri sögu og fjölbreyttum menningarminjum sem hafa mótast í gegnum aldirnar. Titill sýningarinnar vísar í fyrirbærið leiðarlög; afmörkuð, lárétt jarðlög sem liggja samsíða yfirborði jarðar og einkennast hvert um sig af tilteknum eðlis-, efna- og líffræðilegum eiginleikum. Hér endurspeglast ferli líffræðilegra umbreytinga í sögulegum jarðlögum Laugarness, þar sem söguskeiðin hlaðast upp hvert ofan á annað eins og jarðvegur sem byggist upp með tímanum; lag fyrir lag. Verk sýningarinnar marka nýtt stig í þessu lagskipta ferli. Sýningin skapar rými fyrir ýmsa miðla og tjáningarform listamannanna sem allir koma úr ólíkum áttum. Listamennirnir bregðast við forverum sínum og skilja eftir eigin spor í minningum síbreytilegs jarðvegsins.
Meðan að á sýningu stendur verður boðið uppá ýmsa viðburði:
Laugardagur 21.mars
- kl. 14:00 - Leiðsögn sýningarstjóra
- 15:30 - Pola Sutryk leiðir opna vinnustofu í Marzanna gerð. Marzanna eru dúkkur úr stráum sem standa sem tákn fyrir veturinn samkvæmt slavneskum hefðum og eru brenndar og þeim drekkt á vorjafndægrum.
Sunnudagur 22.mars
- 14:00 - Listamannaspjall (Áslaug Magnúsdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Noah Seeland, Pola Sutryk, Þórður Túsan Alisson, Weilan Cha)
Laugardagur 28.mars
- 16:00 - Sýning á heimildarmyndinni TORN- sem fjallar um Birgittu Spur.
Sunnudagur 29.mars
- 14:00 Söguganga um Laugarnes undir leiðsögn Þuru (Þuríðar Sigurðardóttur) Lagt verður upp frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar.
- 15:30 - Listamannaspjall (Celina Aleksandra Borzymowska, Einar Viðar Guðmundsson Thoroddsen, Litten Nystrøm, Regn Evu, roman Voigt, Sólbjört Vera Ómarsdóttir)
Listamenn:
Áslaug Magnúsdóttir
Celina Aleksandra Borzymowska
Einar Viðar Guðmundsson Thoroddsen
Hildur Ása Henrýsdóttir
Litten Nystrøm’s
Noah Seeland
Pola Sutryk
Regn Evu
Roman
Sólbjört Vera Ómarsdóttir
Þórður Túsan Alisson
Weilan Cha
Sýningarstjórar:
Erla Sverrisdóttir
Dina Abedini Niknam
Sýningin Leiðarlag verður opnuð í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, föstudaginn 20. mars kl. 17:00-19:00.
