Styrkjabúðir Heilbrigðisvísindasviðs 2026

Árnagarður
Styrkjabúðir HVS er námskeið fyrir rannsakendur HVS og Landspítala í undirbúningi samkeppnishæfra styrkumsókna.
Námskeiðið hefst 27. febrúar 2026, kl.13:00 -16:00 með fyrirlestrum um undirbúning og uppbyggingu samkeppnishæfra styrkumsókna, kynningu frá rannsóknarstjóra heilbrigðisvísindasviðs um formlegar kröfur til umsókna (með áherslu á rannsóknarsjóð Rannís), leiðbeiningum um fjárhagsáætlun, og hugarflugi þátttakenda um sértæk markmið umsókna sinna.
Vinnustofunni verður síðan fylgt eftir með 3-4 stuttum einstaklings vinnufundum, þar sem þátttakendur fá endurgjöf á umsókn sína frá reyndum styrkhöfum, ráðgjöf um fjárhagsáætlun frá fjármálateymi HVS, með það að markmiði að úr verði styrkhæfar umsóknir að vori 2026.
Námskeiðið nýtist bæði ungum (doktorsnemum og nýdoktorum) og reynslumeiri (akademísku starfsfólki) rannsakendum þvert á svið heilbrigðisvísinda (lífvísindum, klínískum vísindum og lýðheilsuvísindum) sem vilja þróa sitt rannsóknar prógram og undirbúa styrkhæfa umsókn. Við hvetjum alla til að taka þátt!
Dagskrá
13:00 kynning rannsóknastjóra – af hverju styrkjabúðir
13:10 Frá Rannís – um þjónustu varðandi erlenda styrki – og nýjungar varðandi Rannsóknarsjóð 2025
13:30 Sýn umsækjenda – Margrét Helga Ögmundsdóttir
14:00 Sýn umsækjenda – Emma Marie Swift
14:30 – 15:00 Kaffihlé
15:00 Þjónustan á sviðinu – formin frá því í fyrra og hvenær ný eru birt – Ása Vala Þórisdóttir
15:15 Vinna fagráða – Eiríkur Steingrímsson
15:45 – 16:00 planið fram á vor
Vinsamlegast athugið að skráningar er þörf á viðburðinn og fer hún fram hér: https://forms.office.com/e/reuJuVevQk?origin=lprLink