Skip to main content

Stafrænar aðferðir við mælingu fjölbreytileika tungumála

Stafrænar aðferðir við mælingu fjölbreytileika tungumála - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. mars 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 208

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Alexander Peter Pfaff, lektor í þýsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur í hádegisfyrirlestraröð Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista. 

Fyrirlesturinn ber titilinn How Many Ways Can You Say It? Measuring Language Diversity with Digital Methods og fer fram á ensku. 

Haldið í stofu 208 í Veröld, þriðjudaginn 3. mars kl. 12:00-13:00. Hægt verður að fylgjast með fyrirlestrinum í streymi hér.

Í fyrirlestraröð MSHL kynna sérfræðingar úr ýmsum greinum stafrænna hugvísinda og lista rannsóknir sínar í stuttum og aðgengilegum fyrirlestrum. Boðið verður upp á ókeypis popp og nóg af hugmyndum til að deila!

Smellið hér til að kynna ykkur dagskrá fyrirlestraraðarinnar.

Um erindið:

Understanding how languages vary in the way they build expressions is essential for studying texts across periods and languages, yet traditional descriptions capture only a fraction of this diversity. Patternization is an approach that combines traditional text analysis and corpus linguistics with mathematical methods into a Python tool that allows us to explore such syntactic variation: it treats phrases as sequences of category labels and compares the patterns that actually appear with the full range of patterns that could appear. This task is hardly feasible if performed manually, illustrating how digital methods can reveal nuances otherwise invisible to the human eye. 

Alexander Peter Pfaff, lektor í þýsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands.

Stafrænar aðferðir við mælingu fjölbreytileika tungumála