Sjálfbærniþing HÍ 22. apríl - Taktu þátt í mótun stefnu HÍ31

Háskólatorg
Litla torg
Litla torg, 22.04.26 kl: 13:00
Vinsamlegast skráið þátttöku á vinnustofu hér
Sjálfbærnistofnun HÍ og Sjálfbærninefnd bjóða þér á Sjálfbærniþing 2026, miðvikudaginn 22. apríl kl. 13:00-15:30. Á þinginu verður lögð áhersla á samtal um sjálfbærni í stefnu HÍ31 og með hvaða hætti Háskóli Íslands á að hafa leiðandi hlutverk í sjálfbærni. Þingið er hluti af samráðsferli við stefnu HÍ31 og rödd þín skiptir máli!
Á þinginu verður sjónum beint að því hvernig sjálfbærni getur og á að fléttast inn í stefnumótun, starfsemi og hlutverk háskólans. Dreginn verður lærdómur af fyrri stefnu og rætt hvernig sjálfbærni birtist í komandi drögum að nýrri stefnu HÍ (grænbók). Með stuttum kveikjum og umræðu fá þátttakendur þar að auki tækifæri til að eiga samtal um sjálfbærni í stefnu skólans í vinnustofu.
Mikilvægt er að skrá þátttöku á þingið fyrir vinnustofuna. Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að hafa áhrif á stefnumótun Háskóla Íslands í tengslum við sjálfbærni og er vonast til að fólk úr öllum áttum taki þátt í þinginu og samtalinu.
Fundarstjóri er Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ.
Þingið verður haldið á íslensku. Boðið er upp á enskumælandi borð í vinnustofu sé þess óskað.
Drög að dagskrá:
13:00. Opnun, Jón Geir Pétursson, formaður Sjálfbærninefndar HÍ
13.10. Sýn Háskóla Íslands á sjálfbærni. Ragna Benedikta Garðarsdóttir, aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis.
13:15. Hugvekja um sjálfbærni. Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu - miðstöðvar um sjálfbærni
13:25. HÍ26, sjálfbærni í síðustu stefnu. Lára Jóhannsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði og fyrrum formaður sjálfbærninefndar HÍ
13:35. Kynning á sjálfbærni í Grænbók HÍ31. Þór Hauksson, gæða- og stefnustjóri HÍ
13:45. Stutt hlé
13:55. Vinnustofa og umræður
15:30. Þingi slitið
Sjálfbærnistofnun HÍ og Sjálfbærninefnd bjóða þér á Sjálfbærniþing 2026, miðvikudaginn 22. apríl kl. 13:00-15:30. Á þinginu verður lögð áhersla á samtal um sjálfbærni í stefnu HÍ31 og með hvaða hætti Háskóli Íslands á að hafa leiðandi hlutverk í sjálfbærni. Þingið er hluti af samráðsferli við stefnu HÍ31 og rödd þín skiptir máli!
