Skip to main content

Sæmundarstund 2026

Sæmundarstund 2026 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. mars 2026 13:00 til 13:30
Hvar 

Aðalbygging

skeifunni við Aðalbygginu

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fjórtánda árlega Sæmundarstund fer fram föstudaginn 20. mars kl. 13.00 til 13.30, við styttuna af Sæmundi fróða í skeifunni við Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og skrifstofa rektors Háskóla Íslands.

Sæmundarstund var fyrst haldin á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011 að frumkvæði Oddafélagsins, sem er félag áhugamanna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum þar sem Sæmundur fróði bjó. Stundin hefur verið haldin árlega síðan, jafnan á degi sem næst vorjafndægri.

Þar er lærdómsmannsins og þjóðsagnapersónunnar Sæmundar fróða Sigfússonar minnst en hann var uppi á 11. og 12. öld. Sæmundur fór utan til náms og nam m.a. við skóla í Evrópu áður en hann sneri aftur til Íslands og gerðist prestur að Odda á Rangárvöllum.

Líkt og fyrri ár fer Sæmundarstund fram við styttuna af Sæmundi á selnum, sem stendur í Skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Styttuna gerði Ásmundur Sveinsson og vísar hún til frægrar þjóðsögu af viðureign Sæmundar við kölska en samkvæmt þjóðsögunni flutti hann Sæmund heim til Íslands í selslíki.

Viðri illa, færist Sæmundarstund inn í anddyri Aðalbyggingar.

Dagskrá

1. Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp.
2. Þór Jakobsson, fyrrverandi formaður Oddafélagsins, greinir stuttlega frá sögu og tilgangi Sæmundarstundar.
3. Ágúst Sigurðsson, formaður Oddafélagsins, flytur ávarp.
4. Arent Orri J. Claessen, forseti Stúdentaráðs, flytur ávarp.
5. Sæmundarstund slitið.

Boðið er upp á kaffiveitingar í Bókastofu Aðalbyggingar að loknum viðburði.

Fjórtánda árlega Sæmundarstund fer fram föstudaginn 20. mars kl. 13.00 til 13.30, við styttuna af Sæmundi fróða í skeifunni við Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og skrifstofa rektors Háskóla Íslands.

Sæmundarstund 2026